Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1749
1749
1749

Í heiminn Bólstaðarhlíðar Björn

Hljóðbrot0:00

Lag Ó, fögur er vor fósturjörð

ÍÍ heiminn Bólstaðarhlíðar Björnbóndi og klerkur mæturátti samtals átta börnog allt voru það dæturvið það urðu allvel sáttenda mjög að vonumþví fleiri' h'efur presta enginn áttenn að tengdasonum.

Glúmur Gylfason · 1749

Heimildir og samhengi

* sr. Björn Jónsson (d.1825) í Bólstaðarhlíð, Húnavatnssýslu., fyrri kona, - sem hann átti börn með - Ingibjörg d. 1816 Ólafsdóttir á Frostastöðum Jónssonar.
Lofaður í Íslenskum æviskrám Páls Eggerts Ólasonar: ,,Vel gefinn, vel að sér, hagmæltur, orðkringur og hagur, talinn með bestu kennimönnum, glaðlyndur, fjörmikill, búsýslumaður hinn mesti og starfsamur, hlaut verðlaun frá kóngi fyrir vefnað".
Þar einnig haft eftir gömlum mönnum að hann sé réttur faðir sm. Björns Auðunarsonar Blöndal (1787-1846). (1830).
7 dætranna giftust prestum.

Kristín, dóttir Björns var móðir Þuríðar Þorvaldsdóttur sálmaskálds Böðvarssonar (sjá 1791), móður sr. Þorvaldar Jakobssonar í Sauðlauksdal, föðurafa Vigdísar Finnbogadóttur forseta.

(Ísl. æviskrár; Lúðvík Kristjánsson, Vestræna, 135).
Sjá og 1825.

Myndir

Einnig frá árinu 1749

  • Á endanum tókst sig á því glöggva
← 1748Sögu skrýtna segja skal1749 →Á endanum tókst sig á því glöggva