Á endanum tókst sig á því glöggva
Á endanum tókst sig á því glöggvaÍslands bestu sonumað betra væri að hengja og höggvaheldur en drekkja konum.
Heimildir og samhengi
Vegna brota á Stóradómi frá 1564 um blóðskömm og dulsmál telur Einar Laxness í Íslands sögu I, bls. 102, að a.m.k. 18 konum hafi verið drekkt á Þingvöllum á tímabilinu 1618 til 1749.
E.t.v. var fyrstu konu drekkt 1599 í Bakkárholtsá í Ölfusi, en síðast 1754í Mikladal við Patreksfjörð, en tvær hálshöggnar eftir það,1760 og 1792.. Hér fylgir listi Wikiwand yfir aftökur og dauðadóma á Íslandi þar sem ekki var náðað:
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Árið 2000 gengu prestar Íslands sem staddir voru á Kristnitökuhátíð á Þingvöllum - nema einn (?) - iðrunargöngu vegna þáttar Guðbrands Hólabiskups Þorlákssonar í ítrekun Stóradóms 1585, sem þó var á ábyrgð konungs, sem var sjálfskipaður ,,páfi" kirkjunnar í Danaveldi og hafði náðunarvald. Dómurinn - lögrétta - var veraldlegur dómstóll og hefur verið bent á að sýslumenn og dómarar, fremur en prestar, hefðu mátt ganga iðrunargönguna og jafnvel með hennar hátign, Margréti Þórhildi Friðriksdóttur í broddi fylkingar.