Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1756
1756
1756

Land í veðravíti statt

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

LLand í veðravíti stattvissu' ei ótíð slíkakollekt gáfu' á kirkju' í hattog kóngurinn þá líka.

Hörgull, fellir, hungur, bölhöfuðskepnur spilaaf þjóðum hlutum þiggja mjölsem þó ei komst til skila.

Glúmur Gylfason · 1756

Heimildir og samhengi

Vegna samfelldra harðinda frá 1751 voru samskot tekin við kirkjur í öllu danska ríkinu, þ.e., frá Norður-Noregi til Suður-Jótlands, þ.e., núverandi Þýskaland, Holstein og Suður-Slésvík.
Keyptar og sendar af stað 2000 tunnur korns, en vegna sumarhafíss náðu skip ekki til Norðurlands en hestar ekki til reiðu: ýmist vannærðir eða étnir.
Mjölið komst því bókstaflega hvorki lönd né strönd.
Full not reyndust þó fyrir mjöl á Suðurnesjum og í Gullbringusýslu vegna aflabrests. Þar voru vetrargeymslur Hörmangara opnaðar 1755 með amtmannsleyfi, Magnúsar Gíslasonar. Um það fjallar Lúðvík Kristjánsson í Vestrænu, bls. 204.

Íslands Árbók, annálar V, 42: ,,Margir að sönnu úr Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum báru sig eftir þessu mjöli, en hvört þeir fengu þar af meira en helminginn, er oss ekki vitanlegt, því almúgi á Nesjum og þar nálægt þoldi ei við, á meðan það var óeytt".

Ísl. annálar VI, Djáknaannáll, bls. 117: ,,Kóngur sendi 6 kaupför og 4 duggur til að færa mjölið milli kaupstaðanna og annað mjölskip um haustið til Reykjavíkur".

,,Fjöldi fólks féll nyrðra, 4.000 hestar og 5.000 fjár og heyjaðist lítt” segir Gísli Konráðsson.
Þeir sem gátu og vildu leggja sér hrossakjöt til munns stóðu betur að vígi.

Harðindin 1751-1758 talin hafa kostað 6.000 manns lífið.
Aðrar heimildir m.a. Ísl. annálar VI, bls. 104.

Þorvaldur Thoroddsen, Árferði á Íslandi, 350 ,,En það eru sorgleg sannindi, að allur þorri almennings virðist, þrátt fyrir margra alda typtanir, aldrei hafa getað lært fyrirhyggju og forsjálni, menn láta sér sjaldan dæmi forfeðranna að varnaði verða".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1756

  • Á skólagöngu skálka batt
  • Undir tönn fæst ekki margt
← 1755Kóngur náðar ekki auma.1756 →Á skólagöngu skálka batt