Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1756
1756
1756

Á skólagöngu skálka batt

Hljóðbrot0:00

Lag Einu sinni átti ég hest

ÁÁ skólagöngu skálka battskapið bráðan endaað eldri hafi´ h´inn yngra lattekkert kvað á benda.

Af Halldóri ytra, Fróni fjær,fréttum hingað slaðurað þar mönnum troði um tær,- tröll, en ekki maður.

Halldór þótti ei vera værtil vandræðanna hraðurstorkar, bítur, stelur, slærStrandasýslumaður.

Glúmur Gylfason · 1756

Heimildir og samhengi

Halldóri Jakobssyni frá Búðum, síðar sm. Stranda, vísað úr Háskólanum fyrir ofbeldi, sýslumannsferillinn áþekkur, sjá 1764 og 1788, 1790;
föður hans, Jakob Eiríkssyni sterka, vísað úr Skálholtsskóla fyrir sömu sakir veturinn 1729-30. (1725). Sem sýslumaður hélt Halldór uppteknum hætti og var þá höndin laus, t.d. við yfirheyrslur og kostaði hann útgjöld.

XII. bindi Íslendingasagnaútgáfunnar, 1947 (Guðni Jónsson), bls.XIII, segir að Halldór Jakobsson sé almennt talinn höfundur Ármannssögu hinnar yngri.

Jón (1769-1836), sm. Espihóli var annar sonur Jakobs og ber Jóni Espólín, syni hans, saman við skólayfirvöld um skapferli og líkamsburði þeirra Búðafeðga allra og uppeldishætti.MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Espólín var þó sjáfur - eins og oft vill verða - hlyntur hörðum refsingum og saknaði gapastokkanna er þeir hurfu.

Sbr. Afmælisrit Gissurar Bergsteinssonar 90 ára, Sögu frá Skagfirðingum I, 65, Íslenskar æviskrár, Stiftamtmernn og amtmenn (sm. Magnús Ketilsson, bls. 49).

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1756

  • Land í veðravíti statt
  • Undir tönn fæst ekki margt
← 1756Land í veðravíti statt1756 →Undir tönn fæst ekki margt