Löngum var um fortíð fróð
Lag Yfir kaldan eyðisand
Löngum var um fortíð fróðferil Njáls og Marðaren hundrað ár tók hungraða þjóðhagnýta ávöxt jarðar.
Heimildir og samhengi
Á bls. 54 í Ritsafni Eyjólfs Guðmundssonar á Hvoli er staðfest að jarðarávextir hafi fyrst verið á borðum í Mýrdal, að heitið geti, eftir 1860 til 1870.
Sjá 1758 hér á síðunni.
Vefursonichits.com (opnast í nýjum flipa)
Íslenskar æviskrár, I, 230 segja sr. Björn Jónsson ,,undarlegan í háttum og matarræði". Sr. Ágúst Sigurðsson útskýrir það í Fornum frægðarsetrum, IV, 55, að hafi etið grænmeti og því hrakist (einelti?) frá Eyjafirði 1860. Hann bar nafn móðurbróður föður síns, garðræktarfrömuðarins sr. Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal.
Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur greinir frá því í bók sinni, Leitin að Klaustrunum, bls. 448, að þegar Skriðuklaustur var grafið upp árin 2000 til
2012 hafi sést að þar á fyrri helmingi 16. aldar, hafi á borðum verið næpur, ferskt grænmeti og evrópsk villiepli.