Kóngur allra líf vill lengja

Kóngur allra líf vill lengjalögbrjóta sem bófasvo af nú látum loks að hengjalandeyður og þjófa.

Glúmur Gylfason · 1758

Heimildir og samhengi

Síðast hengdur þjófur.
Frá 1752/3 til 1757/8 höfðu verið slík harðindi að líkja mátti við aldamótaharðindin um og eftir 1700.
Flosnuðu þá margir upp og lögðust í gripdeildir og flakk.

1734hafði kóngur sent tilskipun um að hætta að hengja þjófa við þriðja brot.
Ekki hafði því verið vel hlýtt.
1757 sömdu sýslumenn bænaskrá til kóngs um að mega halda áfram að hengja þjófa.
Sýslumennirnir fóru þar fram á að mega hengja þá sem stælu tuttugu rd. virði í fyrsta sinn, 10 dala virði í annað sinn og fyrir smáþjófnað í þriðja sinn.
(Öldin átjánda, bls. 225).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Gísli Gunnarsson í ritgerð um Móðuharðindin, M&M 1984, bls. 238: ,,Ekki hefur borið mikið á umræðu um það hve rækilega fátækt fólk var fyrirlitið í gamla íslenska sveitasamfélaginu, en þessi fyrirlitning hindraði tvímælalaust varnaraðgerðir gegn hungurdauða. Það viðhorf var engan veginn óþekkt, að fátæklingar væru best geymdir dauðir". (Í tilvísun er Skúli fógeti undantekinn).

Helgi Þorláksson, Á sögustöðum, bls. 65: ,,Um 1970 var hljómgrunnur hérlendis fyrir að heyra hvernig Íslendingar hefðu kúgað Íslendinga"

Prófessor Guðmundur Jónsson um Gísla Gunnarsson látinn:
Gísli bendir á að í hallærum hafi valdamenn haft meiri áhyggjur af þjófum, flökkurum, lækkandi afgjöldum og skorti á vinnufólki en sveltandi alþýðu. Þeir skeyttu engu um neyð almúgafólks og álitu hungursneyðir heppilegar takmarkanir á fólksfjölda. Þegar líður á átjándu öldina hafi þó viðhorf ráðandi stétta tekið að mildast.

Dr. Steinunn Kristjánsdóttir í fyrirlestri 9/2 2019:
,,75 þjófar teknir af lífi á Íslandi á 174 ára tímabili, sá fyrsti árið 1584 en síðasti árið 1758”.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir