Kónginn Ásverjaættin plokkar
Lag Tíu litlir negrastrákar
Kónginn Ásverjaættin plokkareinn þá vestur brokkarStóradóminn stjórnin kokkarí stað hans dygðu smokkar.
Heimildir og samhengi
Um fyrri hluta 1. vísu: sjá 1563.
Stóridómur.
Þann rétt sem ríkið hefur til að beita þegnana valdi fékk kóngur og dómendur hans allan við siðbreytinguna en deildi áður með kaþólsku kirkjunni. Hún hafði haft dómsvald í siðferðismálum og var fullnægt hérna megin grafar með yfirbótarverkum, útskúfun úr mannlegu samfélagi, forboði, en með hreinsunareldi handan grafar.
Við siðbreytingu gerðist konungur páfi, þ.e., bar ábyrgð á siðferði þegnanna. Skyldu menn standa reikning allra gerða sinna hérna megin grafar og sektir renna til sýslumanns, hirðstjóra og kóngs. Undir dóminn féllu frillulífi, hór, blóðskömm og dulsmál. Tvö þau síðustu dauðaverð við þriðja brot uns þau urðu söluvara líka (1731). Biskuparnir, Ólafur Hjaltason og Gísli Jónsson, urðu ekki við þeirri ósk konungs, er komin var frá íslensku lögmönnunum, að biskupar semdu reglur um refsingar við glæpum sem voru svo óheyrilegir að enginn nefndi þá á nafn. Var það þá gert í Danmörk. Konungsbréfið kom til alþingis 1563 en hlaut ekki samþykki þar. Næsta ár bað hm. Páll Stígsson lögmenn tilnefna menn í nefnd er semdi viðunandi siðferðislagabálk. Voru þá dómkvaddir 24 sýslu- og lögréttumenn af öllu landinu og sömdu Stóradóm.
Í doktorsritgerð 1993 telur Már Jónsson upp íslenska sagnaritara allt fram til þess tíma, sem kepptust við að firra Íslendinga allri ábyrgð af Stóradómi og kenna Dönum um. Það fái ekki staðist og tekur Már undir með Eiríki Þorlákssyni frá 1976: ,,Dómurinn er gerður af landsmönnum sjálfum fyrir tileggjan innlendra valdsmanna þó svo með velþóknun konungs sé”. Bætir svo við: ,,Setning Stóradóms var samvinna höfuðsmanns og æðstu manna á Íslandi, lög-, lögréttu- og sýslumanna”.
Svo seint sem 1986 kemur bók út hjá Hildi: ,,Syndir feðranna I. Þar sem stendur á bls. 32:
,,Voru Íslendingar tregir mjög til að samþykkja þennan (Stóra)dóm en þeim var engu að síður þröngvað til þess."
Guðbrandur Þorláksson, síðar biskup, sem annars var refsingarsamur, tók síðar - laust fyrir 1568 - að berjast fyrir að færa mörkin niður um einn lið, af því að það hentaði honum við að endurheimta jarðir afa síns, lm. Jóns Sigmundssonar, d. 1520, sem missti eignir sínar, bannfærður, vegna þess ákvæðis.
Fyrst getið er tilgangs Guðbrands er skylt að nefna, að lögréttumenn höfðu vissulega margir hlotið arf, sem þakka mátti eldri reglum um sifjar.
Á bls. 194 í Sögu Íslendinga IV, rekur Páll Eggert Ólason hvernig forréttindastéttin fór oft í gegnum sjálfa sig í þessum efnum og hagaði seglum eftir vindi, t.d. í Möðruvallamálum.
HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)
Lokaorð vísunnar skal ekki túlka sem stuðning við öll brot á Stóradómi. Sjá og skýringar við 1550 – síðari vísu þess árs.
(Tilvísun, Már Jónsson: Blóðskömm á Íslandi, bls. 16-127; Einar Laxness: Íslands saga A-Ö).
Um Pál Stígsson má lesa í bók Helga Þorlákssonar, Á sögustöðum, bls. 72.. Sjá og hér 1563.