Guðrún eldri Ögri frá
Guðrún eldri Ögri fráásamt Brjánslæk og NúpiHamborg einnig hélt til áhöfði meinum drúpi.
Heimildir og samhengi
Lést 1563 líklega á Saurbæ, Rauðasandi, Guðrún ,,eldri" Björnsdóttir, húsfreyja á Brjánslæk og Núpi í Dýrafirði, fædd 1489 í Ögri, dóttir sm. Björns Guðnasonar og Ragnhildar Bjarnadóttur (hákarla Bj.), en kona Hákarla-Bjarna Marteinssonar á Eiðum var Ragnhildur Þorvarðarsonar Loftssonar ríka.
En móðir Björns sm. í Ögri var Þóra, laundóttir Björns ríka á Skarði.
Fyrri maður Guðrúnar, 7. nóv. 1507, var Bjarni Andrésson, lrm. á Brjánslæk, d. 1508 eða 1509.
Síðari maður, g. 1517, Hannes Eggertsson, d. 1533, lm. og hirðstjóri á Núpi en þau bjuggu í Hamborg um tíma frá 1524. Dóttir þeirra Hannesar og Guðrúnar var Katrín, biskupsfrú Gissurar Einarssonar - sjá 1542 og 1543, en áttu líka m.a. soninn Eggert Hannesson, lm. og hirðstjóra á Saurbæ á Rauðasandi, sem var ríkasti maður landsins á sinni tíð, d.1583, sjá þar.
Guðrúnar er einkum getið vegna þeirrar aðfarar sem sem Ari (og Guðmundur telur sr. Ágúst Sigurðsson í Fornum frægðarsetrum 3, 175) Andrésar Guðmundssonar ríka Arasonar veittu henni á Núpi 1520, að Hannesi fjarstöddum.
Sr. Ágúst vill meina að Guðrún hafi þá flúið frá Núpi um tíma.
Langar og sögulegar deilur stóðu um eigur Guðmundar ríka (hvarf um 1448) en fyrri tengdafaðir Guðrúnar, Björn Guðnason í Ögri var í einu aðalhlutverkinu í því brölti og Núpur í hinu vafasama eignasafni Guðmundar heitins, sem margir gerðu tilkall til, þ. á m. Björn í Ögri og Andrés í Saurbæ, faðir þeirra bræðra, Ara og Guðmundar.
Hefur gerrst fjallað um þessar erfðadeilur eftir Guðmund ríka Arason Arnór Sigurjónsson í Vestfirðingasögu sinni.