Norðursýslu sviptur er
Lag Nú til hvíldar halla eg mér
Norðursýslu sviptur erSvalberðingur prúðiMagnús Vest- til fjarða ferog finnur sér þar brúði.
Til kóngs selja bræðurnir brennisteinþá bál er ei lengur til staðar.Er sýslu fá, umboð og önnur beinað Ögri sér Magnús þá hraðar.
Heimildir og samhengi
Fornbréfasafn XIV, 63. Lúther slökkti hreinsunareldinn í löndum mótmælenda. Til púðurgerðar kaupir þá kóngur brennisteinsréttindi Reykjahlíðar af bræðrunum Nikulási d. 1591 og Vigfúsi d. 1603 Þorsteinssonum Finnbogasonar lm. Maríulausa. Sem greiðslu fá þeir umboð afgjaldalaus í 9 ár: Nikulás Munkaþverárklaustur, og Vigfús Norðursýslu án þess tilkynnt væri Magnúsi prúða Jónssyni frá Svalbarði í Eyjafirði, að hann væri þeirri sýslu sviptur sem hann hafði haft frá 1556. ,,Fúsi sem kallar sig sýslumann”, er þá haft eftir Magnúsi. Ekkill varð hann ári síðar um fertugt, og forðar sér vestur að Ögri 1565 og eignast þar barnunga konu, Ragnheiði, f.~ 1550 dóttur Eggerts fv. hstj., nú lm. NV, Hannessonar, sem gerir hann lögsagnara sinn í Ísafjarðarsýslu, en hlýtur síðan Barðastrandarsýslu. Þar með eignaðist Magnús - þótt prúður héti - annan óvin þar, sm. Árna Gíslason (sjá 1569 og 1570).
Þó kom þar vegna fámennis í auðstétt, að Magnús gifti Sæmundi, syni Árna, Elínu dóttur sína eftir þann aðdraganda, að Magnús orti:
Fæst ei skjól hjá faldasól
firðar honum það segi
nema eigi hann Hól fyrir Höfuðból
hana fær hann eigi.
Árni þá snöggur að afla sér Hóls og bjuggu þau Elín og Sæmundur og niðjar þeirra stórt sem lögréttumenn á Hóli í Bolungarvík og héldu við innbyrðis giftingum og báru fram til manntalsins 1703 nöfn þessara forfeðra. Í Einars sögu Guðfinnssonar, bls. 100 til 103, er ættin rakin áfram til Einars (1898 - 1985).
Sonarsonur Magnúsar prúða, Magnús, (1615) á Reykhólum, Arason frá Ögri, hlaut sonardóttur ,,Fúsa” að konu 1620, Þórunni ríku Jónsdóttur, sem þá var ekkja frá 1617 eftir Sigurð yngra Oddsson, biskups, og umboðssviptingin þá gleymd og grafin. Áður höfðu báðir brotið odd af oflæti sínu, Svalberðingurinn fyrrnefndi, Ari Magnússon í Ögri og óvinur ættar hans, Guðbrandur biskup sem neyddist1594 til að gefa Ara Kristínu dóttur sína. (1606).
Bróðursonur Magnúsar prúða, lm. og sm., Jón Sigurðsson, (1578), kvæntist Þorbjörgu Magnúsdóttur, sonardóttur Fúsa, þ.e., fyrrnefnds Vigfúsar Þorsteinssonar.
Vigfús í Reykjahlíð (Fúsi), átti og sonardótturina Þorbjörgu Jónsdóttur, en Þorbjargarnafnið kemur frá móður Þorkels Guðbjartssonar (d. 1483) officialis og fjölkunnugs prests í Laufási.
Þannig var Mammon einráður á hjónabandsmarkaðinum þá, sem gat líka boðað gott, nefnilega þegar mægðir og (krúnu)erfðir bundu endi á stríð á milli ætta og jafnvel þjóða.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
(Þvingaðar) sættir keppinauta má ætla að hafi komið húsbóndahollum hjúum illa á óvart og þau oft sein til að sættast við fyrri óvini húsbænda. Slík uppákoma er sýnd í dönsku þáttaröðinni Matador, þegar Laura, ráðskona bankastjórans Varnæs, vill í silfurbrúðkaupi húsbændanna hvorki syngja né borða með fyrrum keppinaut þeirra, kaupm. Skjern. MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
(1562, 1568, 1570, 1572, 1603, 1617).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
(Ísl. æviskrár; Guðrún Ása Grímsdóttir, Grunnvíkingabók I, 48).