Marköngladómur Magnúsar prúða
Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870
Marköngladómur Magnúsar prúðameð hverjum vildi bannahafsins þorskum í sig úðaagni hásetanna.
Heimildir og samhengi
Marköngladómur Magnúsar prúða Jónssonar (~152(1)5?-1591) á Nauteyri, Ísafjarðardjúpi, ásamt 6 mönnum öðrum.
Önglar háseta voru merktir sérstaklega. Í dómsorði sagði m.a.: ,,Húsbændur hafa léð sínum dygðugu þjónustumönnum einn eða tvo eða þrjá öngla af sínum góðvilja. Og nú hefur svo aukist að orðnir eru 20 eða 30 og sums staðar heil lóð. Þessa sömu marköngla beita þeir riklingi, heilagfiski og öðru fiskinum hið fýsilegasta þar önglar húsbændanna eru beittir þorski eða öðru verra og stundum óbeittir.”
Dæmdu svo af alla marköngla í sýslunni.
Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 254:
,,Markönglarnir voru að mati þeirra tilraun til að bjóða sumum vinnumönnum betri kjör en venja var og á þann hátt lokkuðu markönglabændur dugmikla vinnumenn frá öðrum bændum. Einnig var hættulegt að láta vinnumenn fá persónulegan ábata við að framkvæma ákveðin verk; slíkt gat ógnað jafnvægi samfélagsháttanna".