Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1568
1568
1568

Ormi dugðu' ei frændur, fé

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

OOrmi dugðu' ei frændur, féfrekt af Eggert mæddurfyrir kóngi féll á knéfátæklega klæddurfyrir löngu lúður gaflitlu barni' í stíunú hverju þiggur aftur afembætti að nýju.

Hannessonur hátt með gnýhár sitt tók að reyta:,,Kóngi botna ekkert íuppreist skyldi veitaán þess vilja' og atkvæðisAlþingis að leitaað því Friðrik gerir gysgerræði hyggst beita".

Glúmur Gylfason · 1568

Heimildir og samhengi

Annáll III, 46, 47: ,,Kom út Ormur Sturlason með lögmannsdæmi norðan og vestan og sigldi hann aptur, því Eggert mótstóð hann".

Árbók Espólíns, framh. 4. þáttar: ,,Ormr hafdi verit quensamr mjög, og svallad med imsum konum fé sínu, giptum ok ógiptum; hann var þrisvar í haldi á Bessastödum ...og kona hans ordit at leysa hann út med stórfé; Eggert Hannesson havdi á hönum óvild mikla, oc hugdi hann mundi rægja sig ef hann kæmist utan oc fyrirbaud því öllum at flytja hann: hafdist Ormur þá vid á austfjördum med Gudrídi Þorsteinsdóttr Finnbogasonar, systr Vigfúsar (brennisteinsfjölskyldan 1563) þau systkina börn, og hjálpadi hún Ormi, reid í kaupstadinn og gaf þískum mönnum er þar voru uxa gamlan til at flytja hann. ...létu þeir hann af skipi nordarlega í Noreg. Fór hann þá vid vonarvöl til þess er hann hitti Fridrik konúng af hendíngu einni oc gekk á veg fyrir hann í vadmáls úlpu grárri, féll á kné oc bad um nád; konúngr spurdi hvat hann skadadi. Ormur sagdi til sín, oc taldi hönum eymdar hag sinn. Konúngr kannadist þá vid hann oc spurdi hvort hann væri sá er sér hefdi gefid lúdrinn fordum, laungu ádr en hann tók konúngdóm? Ormr játadi því; þá baud konúngr at gefa hönum klædi ný oc skipadi hönum aptr lögmanns dæmit".

,,Vegna vanskila og fyrir ýmsar sakargiftir" (Ísl. æviskrár) var vikið báðum lögmönnunum frá embættum 1553: Ormur Sturluson (1516-1575) hafði orðið lm. NV 1547. Þótt væri dóttursonur þess virta Finnboga lm. Jónssonar, var hann óreiðumaður, en naut ótrúlega mikillar náðar Friðriks II. sem vildi hann að nýju í stöðuna, ef hann gæti greitt skuldir sínar (1921), en lm. Eggert Hannesson og lögrétta ekki á sama máli og vék Ormur að fullu frá 1554. Hann náði enn lögmennsku NV 1568 eins og hér er frá sagt, sem ,,og Barðastrandarsýslu og var þá Eggert Hannesson sviptur hvoru tveggja" (Saga Íslendinga IV, 195) og hélt til 1572, en missti þá ,,vegna hirðuleysis og afglapa" (Saga Íslendinga IV, 197). Um lögmennskuna 1568 segir Páll Eggert Ólason í Sögu Íslendinga IV, 188, að kóngi ,,hafi stórlega mislíkað það er hstj. H. Krag vildi ekki styðja Orm Sturluson til lögmannssætis 1568 að boði konungs, er Eggert Hannesson reis upp í lögréttu gegn þessu konungsboði".

Kirkjan hafði ~1551 misst dómsvald sitt til lögmanna og lögréttu og dæmdi margnefndur Ormur Sturluson, á Bessastöðum 1569 - þá lm. NV - hjónaband Bjargar Þorvaldsdóttur og lm. Jóns Sigmundssonar frá 1497 gott og gilt með samþykki hm. C. Walkendorphs. Var það gert að kröfu verðandi Hólabiskups, Guðbrands Þorlákssonar, vegna erfðahagsmuna, en hann var dóttursonur lm. Jóns.
Sjá Sögu Íslendinga IV, 268.

(Sjá 1620).

(Tílvísun: Alþingisbók I, 41-43. Sjá og Sögu Íslendinga IV, bls. 195-197).

Lögrétta tilnefndi lögmenn og tiltók stundum fleiri en eitt nafn sem kóngur síðan valdi úr og staðfesti.
Eggert Hannesson bjó síðast í Saurbæ á Rauðasandi áður en flutti til Hamborgar. (1583).
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1567Marköngladómur Magnúsar prúða1569 →Ef seggur vill á sjóinn giska