Ef seggur vill á sjóinn giska
Lag lesið
Ef seggur vill á sjóinn giska- síld og þorskur holl -skal þá greiða fimmtíu fiskaFriðriki kóngi í toll.
Heimildir og samhengi
Ástand Íslands um 1700, bls. 370: ,,Lausamenn voru fámennur hópur óvistbundins verkafólks sem réði sig til skamms tíma hjá sveitabændum í kaupavinnu á sumrin og sjávarbændum um vertíð á veturna. Þess á milli flökkuðu þeir gjarnan um sveitir og seldu varning sem þeir höfðu keypt hjá kaupmönnum. Það fór heldur illt orð af lausamönnum fyrir prang, að selja dýra og ónausynlega vöru".
Þar segir og að árið 1350 hafi kóngur, Magnús smek Eiríksson (dóttursonur Hákonar konungs háleggs) hækkað lausamennskugjald úr 3,5 hundr. í 5 hundruð.
Eitt hundrað: 120 fiskar. Kýrverð um 4 hundruð.
Saga Íslands VI, bls. 135: ,,Árið 1569 var lausamönnum gert að greiða konungi árlega 50 fiska í toll, en tekið fram að húsmenn séu lausir við sambærilega greiðslu. Segir að með þeim sé átt við fátæka menn sem njóti ekki býlis og eigi tvö börn eða fleiri".
Í bændasamfélaginu voru ,,efnalitlir þéttbýlisbúar taldir úrhrök, eins konar mein á samfélaginu" (Ragnheiður Kristjánsdóttir, Nýtt fólk, 328).
Þetta átti sinn þátt í hve illa gekk að safna lausnargjaldi fyrir Vestmannaeyinga eftir Tyrkjaránið,1627.
Saga Íslands VI, bls. 134: ,,Lausamenn stýrðu stundum eigin bátum um vetrarvertíð og ef verkast vildi fóru þeir um með varning í sveitum á sumrum". Lausamenn urðu að eiga 5 kýrverð. Kóngur var Friðrik II.