Árna Gísla aldrei brá
Lag Kross á negldur - SSB 114
Árna Gísla aldrei bráófeilinn og kífinní meðallagi mörgum sámaður þótti svífinn.
Slógust uppi á borðum búðabarði Árni Magnús prúðanýkominn að norðanValkendorf afsetti lögmenn, lúðaléði öðrum þeirra skrúðaknappana og korðann.
Heimildir og samhengi
Magnús prúði Jónsson (1564) særðist í hópátökum sinna manna við liðsmenn Árna Gíslasonar að verslun á Skutulsfjarðareyri. Var barist um áhrifasvæði.
Skagfirðingurinn, Árni, kom vestur til styrktar Jóni Eiríkssyni staðarhaldara Skálholtsstóls í Vatnsfirði sem Stefán biskup Jónsson náði undir Stólinn af Birni Guðnasyni, móðurafa Eggerts Hannessonar, tengdaföður Magnúsar prúða. eftir herförina vestur 1517, Er sendiboði biskups, séra Jörundur Steinmóðsson, ætlaði að lesa Birni forboðsbréf í Súðavíkurkirkju 1515 - fyrir að hafa þá lagt undir sig Vatnsfjörð - réðist Björn að honum og misþyrmdi - og enn er slegist. Vísan segir: ,,á borðum búða". Gunnar Karlsson: Fornir hættir IV, 167: ,, ... búðir þurfa(i) ekki endilega að vera hús"; bls. 168: ,,Í Grágás er gert ráð fyrir að farmenn haldi til í búðum". Í þessu tilviki var um tjaldbúð að ræða segja heimildir.
(Arnór Sigurjónsson, Vestfirðingasaga, bls. 442, 453).
Sjá enn fremur um Árna1570, 1562, 1568, 1570, 1572.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þó kom þar, vegna fámennis í auð- og forréttindastétt, að Magnús gifti Elínu dóttur sína Sæmundi, syni Árna. Bjuggu þau og niðjar þeirra stórt sem lögréttumenn á Hóli í Bolungarvík berandi nöfn forfeðranna a.m.k. fram til manntals vestra 1710 .
Árni bjó síðast sem sýslumaður á Hlíðarenda í Fljótshlíð.
Meðal tengdasona hans var Guðbrandur Hólabiskup Þorláksson
Nýr hm., Kristoffer Valkendorf, víkur lm. SA, Páli Vigfússyni á Hlíðarenda.
Páll gerði út frá Vestmannaeyjum og átti viðskipti þar við enska, sem kóngur kunni ekki að meta. Páll var bróðir Önnu á Stóruborg.
Eggert Hannesson vék frá lögmennsku 1568 – hann átti við áfengisvanda að stríða.
Sverð tilheyrði tíðum búningi lögmanns og 1723 er sm. Jh. Gottrup sverði gyrður á Rifi. ,,Sverð drottins hefur i hendi, heiðra skulum vér það" segir í 26. Passíusálmi Hallgríms Péturssonar og á við dómendur, sm. og lm.
Í Sögu Íslands VI, 94 er fjallað um þá Eggert og Árna undir fyrirsögninni ÓPRÚTTNIR BREGÐA Á LEIK:
,,Frá siðbreytingu til ~1570 hafi ókvalráðir leikið lausum hala og náð að sölsa undir sig embætti og eignir með yfirgangi og fölsunum eftir að kirkjuvaldið hvarf og fjarlægt konungsvaldið veikburða”.
Vitnað er í Pál Eggert Ólason: ,,er það eitt af meinum þessa tímabils hve ýmsir fyrirmenn landsins voru óprúttnir".
Myndfarm3.static.flickr.com (opnast í nýjum flipa)
Þetta tók að breytast eftir fráfall hm. H. Bjelke 1683 þótt tæki tíma. Bjelke var mútað 1663 til að sjá til þess að verndarkerfi forréttindamanna yrðu óbreytt eftir einveldistökuna í Kópavogi 1662.
Um það segir Axel Kristinsson, Hnignun, 175: ,,Síðustu 15 ár 17. aldar komu nýir háembættismenn nánast aldrei úr hópi gömlu yfirstéttarinnar ...nú voru gerðar meiri kröfur um hæfni embættismanna ...höfðingjar með verndarkerfi sín voru ósamrýmanlegir skilvísri stjórnsýslu og réttarríki”.
Undir þetta síðasta yrði tekið í Palermo MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
og gegn þessu beindist einveldistakan í Kópavogi 1662, sjá þar.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)