Heimilisbölið þönkum þungt
Lag Augun þín og augun mín
Heimilisbölið þönkum þungtþrautum olli sárum,,mala domestica majora sunt"meingjörðum og ,,tárum".
Ómuna- lands til lokið tíðum leið og Brynjólfs æviárin munu þó enn um hríðellefu góð á sævi.
Heimildir og samhengi
+ Brynjólfur biskup Sveinsson 5. ág., f. 1605.
Fleyg urðu orð hans: «Mala domestica majora sunt lacrymis», (heimilisböl er tárum þyngra), sem Friðrik Erlingsson og Gunnar Þórðarson gera að lokaorðum óperunnar Ragnheiður - sjá 1666.
Brynjólfur lét orðin falla þegar honum voru sögð þau tíðindi að Ragnheiður dóttir hans hefði fætt barn.
Í erindi Arnórs Karlssonar, flutt á fræðslufundi Sögufélags Árnesinga 2006 og birt er í VIII. riti þess 2007, bls. 135, segir að þessa latnesku setningu: «Mala domestica majora sunt lacrymis» hafi Brynjólfur tekið orðrétt eftir Psammetici (Psamtik) Egyptalands- konungi - eða faraó - á 7. öld f.kr., sem hann lét falla þegar honum var sagt að dóttur hans hefði verið kastað fyrir krókódílana í Níl.
Eftir langvinnt harðæri til lands og sjávar byrjaði góðæri 1638, strax og séð varð að Brynjólfur yrði biskup árið eftir. Lauk því 1675, við dauða Brynjólfs þótt ,,fiskbresturinn mikli" yrði ekki fyrr en 1686, sem stóð til 1704.
- sjá 1600, 1639, 1644, 1645, 1651, 1663, 1669, 1670, 1674, 1686;
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)