Eldri flestum Ormur varð
Lag Veik er mundin – Bj.Þ. 915
Eldri flestum Ormur varðog dóttur sinni (?)ekki skildi eftir skarðí ættfræðinni.
Heimildir og samhengi
Fitjaannáll II, 238: ,,...á hans andlátsdegi voru hans niðjar af honum komnir, lífs og liðnir 196”
segir annállinn um sm. Orm Vigfússon f. 1576, d. 28. jan. 1675, Eyjum í Kjós.
Kona Orms, - sem átti með honum 17 börn, upp komust 13, - var Guðrún (d. 90 ára 1668) Árnadóttir prests í Holti, undir Eyjafjöllum, Gíslasonar Skálholtsbiskups Jónssonar, en móðir Hólmfríður Árnadóttir sm. Hlíðarenda, Gíslasonar. (1562, 1569, 1570, 1572) .
Meðal dætra þeirra Orms og Guðrúnar voru Ingibjörg, móðir Sigurðar Björnssonar lm. (1677), og Guðríður d. óg. bl. 104 ára 1718skv. Ísl. æviskrám Páls Eggerts Ólasonar, en 105 ára segir Espólín, en 98 ára segir Íslendingabók. (1718).