Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1676
1676
1676

Griffenfeld átti völd og vell

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

GGriffenfeld átti völd og vellvit og ráð og kænskusamt í ónáð fylkis féller frið kaus við þá sænskuóðara hann sína sásængina út breiddaeilífðina englum hjáog öxina upp reidda.

Borgarskríllinn skemmti sér:Skyldi höggið floppa?Úrskeiðis ef eitthvað ferekkert kann það toppagaman þykir horfa hérá höfuðlausa kroppaen einhver kóngs nú boðin ber:böðlinum að stoppa.

Glúmur Gylfason · 1676

Heimildir og samhengi

Kristján V. freistar þess 1675 að ná Skáni aftur, sem Danir misstu 1660, og byrjar ,,skánska stríðið” og tapar.
Griffenfeld (1673), sem áður var valdamestur næst kóngi og réð t.d. frama Bauka-Jóns, vildi ekki þetta vonlausa stríð en lagði til þá pólitísku lausn að gera bandalag við franska sólkonunginn, Lúðvík XIV. Kóngur, Friðrik V., sem Wikipedia kallar harðstjóra, þóttist vita betur - líklega þreyttur orðinn á snilli G., sem alltaf vissi allt best, - og lét dæma hann til dauða, en náðaði þó á höggstokknum 1676 og sendi í útlegð til Noregs þar sem Griffenfeld dó 12. mars 1699, sama ár og kóngur, Kristján V. sem lifði til 25. ágúst. Kristján V. talaði einungis þýsku og dönsku og átti því erfitt í utanríkissamskiptum, sem á þessum tíma fóru fram á latínu. (Wikimedia).

Griffenfeld bar fyrr borgaralega nafnið Peder Schumacher. Með dugnaði og hæfileikum vann hann sig upp í að verða kóngsins skjalavörður og bréfritari og samdi stjórnarskrána 1661 (Kópav. 1662) til höfuðs aðlinum, en vann þó síðan að því að aðalstitlar voru teknir upp að nýju og þáði þá sjálfur aðalstign með nafninu Griffenfeld.

Samkvæmt
Alfræðida.wikipedia.org (opnast í nýjum flipa)
sönnuðust mútuþægni og embættasölur á Griffenfeld, og kemur Íslendingum varla á óvart. (1673).
Þetta gönuhlaup Kristjáns V., ,,skánska stríðið”, varð til þess að Íslendingar voru krafðir um stríðshjáparskatt 1679 sem reynt var að innheimta í 13 ár með litlum árangri þótt krafan væri lækkuð um helming 1681.
Vegna skattheimtunnar voru samdar jarðabækur í nokkur á frá 1687 og sýslumönnum fengið það starf. Þaðan getur Friðrik IV. hafa fengið hugmyndina að jarðabók Árna og Páls þegar hann þurfti að finna bitling handa Páli Vídalín sem láta mátti í minni pokann fyrir nágranna sínum á Þingeyrum 1702, en Páll ,,skarst úr leik þótt væri um velferð landsins að tefla”. Tilvitnun í Jón Aðils, sjá 1702.

Fallöxi: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Á bls. 221 í Sögu tónlistarinnar eftir Árna Heimi Ingólfsson sést hvernig þessi opinbera aftaka var eins og afrit af ,,opera seria", sem var óperuhefð þessara alda, ...sem bregða skyldi dýrðarljóma á þann sem réð ríkjum. Þær fjölluðu um keisara fornaldar, trúnaðarmenn þeirra og þjónustufólk, svik í ástum og ráðabrugg um ólögmæta valdatöku. Allt fór þó vel að lokum. Á síðustu stundu sýndi valdhafinn af sér goðumlíka miskunnsemi og stórhug. (Úrdráttur).

Síðustu ,,opera seria" samdi W. A. Mozart. Á eftirfarandi slóð sést hægferðugur flutningshátturinn, uppstilltur kór og einsöngvari með nótur og texta í höndum og bíður eftir klappinu þó að hans hlutverki sé lokið.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Afsakið: reidda / breidda.
Á slóðinni Vefurmalid.is (opnast í nýjum flipa) segir Málið.is það, ,,að sjá sæng sína út breidda" vera nútíðarmál.
Rímið ræður gegn betri vitund.

Hér eigast við erfðafjendurnir, Danir og Svíar:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)


Myndir

← 1675Eldri flestum Ormur varð1677 →Lesið