Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1677
1677
1677

Lesið

Hljóðbrot0:00

LLesið

Þorkell í Görðum er genginn og farinngarðinn sinn ræktaði' og oft fór hann þar inn.Sonur hans, Jón, síðar biskups til barinnBelsebúls óvinur, magnaður svarinn,mest þótti vert hversu máli var farinnen miður að barna- þar enginn varð skarinn.

Glúmur Gylfason · 1677

Heimildir og samhengi

SKÓGRÆKTARRITIÐ 2017: ,,+ Þorkell f. 1629, Arngrímsson lærða: læknir og pr. Görðum, Álftanesi, faðir Jóns biskups Vídalín (1666-1720), ræktaði grænmeti, stórmerkur og lærður".
Þorkell nam m.a. lækningar við Hafnarháskóla og stundaði um tíma lækningar bæði í Kh. og í Noregi á árunum 1652 til 1656 og aftur í Kh. 1658.

Jón Ólafur Ísberg í Fyrsta ráðstefnuriti annars íslenska söguþingsins, bls.222:
,, ... ákveðið með konunglegri tilskipun 4. des. 1672, um lækna og lyfsala, að doktorspróf frá háskólanum væri skilyrði fyrir því að hljóta opinbert læknisheiti".

Sonur Þorkels, Jón, Skálholtsbiskup Vídalín 1698-1720, vandaði ekki þeim prettvísa, Gamla í Neðstakoti, kveðjurnar í postillu og predikun, Belsebúl (Beelze-bub) ekki undanskilinn og orðfærið ekki alltaf við barna hæfi, en þau Sigríður yngri Jónsdóttir (bauka) barnlaus.
Jón biskup Vídalín má teljast til fylgismanna heittrúarstefnunnar (1731, 1736, 1757, 1822).

Um Þorkel Arngrímsson fjallar Páll Eggert Ólason í Sögu Íslendinga V, bls. 393-396.

Myndir

Einnig frá árinu 1677

  • Sigurður þótti lítillátur
  • Hefðarkvinnan, Helga í Tungu
← 1676Griffenfeld átti völd og vell1677 →Sigurður þótti lítillátur