Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1677
1677
1677

Sigurður þótti lítillátur

Hljóðbrot0:00

Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

SSigurður þótti lítilláturlögmaður eftir Árnaþá Oddur mætti mikilláturmeir tók gaman kárna.

Glúmur Gylfason · 1677

Heimildir og samhengi

+ Sigurður lm. SA frá 1663, Einarsnesi, Jónsson sm. þar, (kona: Kristín Jónsdóttir Guðmundssonar pr. Hítardal og konu hans, Guðríðar Gísladóttur lm. Þórðarsonar lm. Guðmundssonar). 1677 verður tengdasonurinn, Sigurður Björnsson, Bæ, Borgarfirð lögmaður. (Ísl. æviskrár.).

Oddur Sigurðsson samdi við lm. NV Lárus Gottrup 1714 um að taka við embætti hans en Lárus héldi laununum. Oddur sviptur lm. embætti 1724. Árni Oddsson biskups Einarssonar var lm. SA 1631-1663. (1660). (Annálar).

Fitjaannáll II, 243: ,,...á þeim vetri (1677) andaðist sá virðulegi höfðingi, herra Sigurður lögmaður Jónsson ...á 14. ári hans lögmannsembættis ...sat í Einarsnesi. Hann var haldinn göfugasti maður á Íslandi. Hann var spekingur að viti... lítillátur var hann sem barn, eigi síður við fátækan en ríkan. Hann hafði níu vetur hins sjötta tugar er hann deyði”.
Alveg óvíst að lítillæti hafi verið sterkasta hlið forréttindastéttarinnar íslensku gagnvart múgamönnum.

Einarsnes í Borgarfirði:
MyndFlickr (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1677

  • Lesið
  • Hefðarkvinnan, Helga í Tungu
← 1677Lesið1677 →Hefðarkvinnan, Helga í Tungu