Hefðarkvinnan, Helga í Tungu
Hefðarkvinnan, Helga í TunguHákonar ekkja dóRagnheiði Brynjólfs og barni ungubjargir veitti og fró.
Heimildir og samhengi
Menningarblað/Lesbók Morgunblaðsins 31. okt. 1998. Hluti úr samantekt Gísla Sigurðssonar:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
,,Hákon (Gíslason Hákonarsonar), yngri bróðir Vigfúsar (föður Bauka-Jóns), tók næst við búi í Bræðratungu; vel látinn maður og í ýmsu mikilhæfur. Verðandi bændur á höfðingjasetrinu hafa skimað um land allt eftir göfugu konuefni og þá var ekki fengizt um, þó að vel ættaður og álitlegur kvenkostur væri rétt milli tektar og tvítugs. Gísli lögmaður í Bræðratungu hefur vitað um heimilisaðstæður hjá kollega sínum, Magnúsi lögmanni á Möðruvöllum nyrðra og að þar var upprennandi heimasæta.
Það var sú Helga Magnúsdóttir, sem þá var aðeins 16 ára þegar hún var föstnuð Hákoni í Bræðratungu. Og það er sú sama matróna Helga sem bezt reyndist Ragnheiði biskupsdóttur í hennar raunum og stofnaði jafnvel í voða vináttu sinni við biskupinn.
Hákon í Bræðratungu, eiginmaður Helgu, varð bráðkvaddur 1652 og jarðaður á óðali sínu ,,með yfirsöng Brynjólfs biskups". Þá var Helga í Bræðratungu aðeins 29 ára og gekk þó með sjöunda barn þeirra hjóna. Hún var mikilhæf kona og mat Brynjólfur biskup hana mikils og lét á gamals aldri svo um mælt, ,,að fyrir ofan moldu væri enginn sá er hann ynni betur eða hefði meira gott við að virða en hana". Helga Magnúsdóttir bjó í Tungu til æviloka 1677, en raunar varð hún aðeins 53 ára. Veglegur legsteinn var settur á gröf þeirra hjóna og er hann einn þeirra þrigga sem nú eru á stalli við kirkjuna".
Bræðratunguhjónin, Hákon og Helga, eignuðust engin barnabörn sem komust til aldurs nema Odd Sigurðsson lögmann, sem dó barnlaus 1741, sjá þar og víðar.
Í erindi Arnórs Karlssonar um Brynjólf biskup, flutt á fræðslufundi Sögufélags Árnesinga 2006 og birt er í VIII. riti þess 2007, bls.135, segir að Ragnheiður Brynjólfsdóttir hafi fætt barn sitt og Daða Halldórssonar hjá Helgu í Bræðratungu laugardagskvöldið 15. febrúar 1662, en þar hafði hún verið frá því seint um haustið. Um viðbrögð Brynjólfs, sjá 1675.
Bræðratunga, mynd Mats Vibe Lund: MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)