Ásbjörn sýndi af sér rögg
Lag Afi minn og amma mín
Ásbjörn sýndi af sér röggenginn skyldi' h'ann nytjaþoldi freka hundrað höggheldu'r en Gottrúp flytja.
Seint þess munu sárin gróa- slögin dundu á baki hörð -sem ekki vildi yfir róaókeypis um Skerjafjörð.
Heimildir og samhengi
Mælifellsannáll, I, 556:
,,Lauritz Gottrup, útlendur maður, var umboðsmaður Jóhanns Klein. Vildi Ásbjörn bóndi eigi flytja hann yfir fjörð nokkurn fyrir ekki neitt.
Var hann klagaður fyrir Sigurði lögmanni Björnssyni sem dæmdi að hýða hann tvisvar 100 (höggum); hann leið í ómegin".
Saga Íslendinga VI, 40 (P. E. Ól.) segir Lárus Gottrup hafa verið umboðsmann fógeta og sendimaður hans krafið Ásbjörn Jóakimsson um ókeypis flutning yfir Skerjafjörð. Enn fremur: ,,Fór hin fyrri (hýðing) þegar fram og var henni haldið áfram til þess er Ásbjörn leið í óvit. Þegar af honum bráði var honum gefið að drekka en síðan var hann hýddur að nýju svo að hann féll aftur í ómegin".
Samkævmt þessu er e.t.v. of mikið fullyrt í vísunni, þ.e., að flytja hafi átt Lárus Gottrúp sjálfan.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hjá Einari Laxness kemur fram á bls. 70 í Íslands sögu II, - kvaðir - að án stoðar í lögum hafi landsetum kóngs á Álftanesi verið gert skylt að flytja Bessastaðamenn um Skerjafjörð og nefnt aukakvaðir.
Mynd Mats Wibe Lund af Skerjafirði, smella á
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)