Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1681
1681
1681

Loftur upp við lög á kant

Vikivakalag, sr.BjÞ, bls. 904

LLoftur upp við lög á kantlöngum upp með steitfjár á Melum virtist vantvirðar hófu leit

Stórthundrað fyllti stolin hjörðog stærri yrði í vorum nýlega fallna föl á jörðfengust rakin spor.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1681

Heimildir og samhengi

Ólafur Briem, Útilegumenn, bls. 25: ,,Loftur Sigurðsson tekinn með fjárrekstur á fjöllum uppi og líflátinn".
Grímsstaðaannáll: ,,...hann (L.S.) var til dauða dæmdur ...14. desember 1681. Hans sök var sú, að hann strauk með konu sinni og annarri, sem hann við hélt, norður á fjöll fram frá Hrútafirði. Hann framdi mikinn stórþjófnað í sveitum bæði á dauðum hlutum og lifandi ...stal hann 50 fjár ...á Melum í Hrútafirði og víða á bæjum þar nálægt stal hann 10 eður 12 sauðum. Rak svo alls um stórt hundrað.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Tók sig síðan upp Jón Auðunsson (bóndi Melum) og fékk sér menn, eltu hann austur eftir fjöllum seint um haustið, náðu honum svo um síðir því snjór hafði fallið og brautin sást".
Fitjaannáll segir Loft hafa náðst á Tvídægru og ferðinni verið heitið til Surtshellis.

Guðmundur Daníelsson, Dómsdagur, bls. 199: ,,Ástir í meinum, blóðskömm og sifjaspell nutu alla tíð umburðarlyndis almennings, þjófurin uppskar fjandskap og lítilsvirðingu. Nema hann hæfist upp í að gerst útilegumaður og kæmist á handahlaupum upp á jökul undan þjónum réttvísinnar ...þá varð hann samstundis mikilmenni".

Vefuricelandthebeautiful.com (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1681

  • Ættin lengi skelegg, Skarðs,
  • Ásbjörn sýndi af sér rögg
  • Í hundslíki óhreinn andi þar
← 1681Í hundslíki óhreinn andi þar1682 →Fótalaus Markús mægðis við