Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1697
1697
1697

Þórður átti organið

Lag Senn er komið sólarlag - Bj.Þ. 865

Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915

ÞÞórður átti organiðá það kunni að spilaHjalti blés og hélt því viðhefði það til að bila.

Sögur Íslands ei á slikkenda voruekki gefnar út á þrykköðru hvoru.

Glúmur Gylfason · 1697

Heimildir og samhengi

+ Þórður, f. 1637, Skálholtsbiskup frá 1674, Þorláksson Hólabiskups, Skúlasonar á Eiríksstöðum í Svartárdal, og konu hans, Steinunnar Guðbrandsdóttur biskups.
Þórður flutti prentsmiðjuna frá Hólum til Skálholts og gaf út á níunda áratugnum m.a. Landnámu og Íslendingabók (1688). Það er fyrsta prentun Íslendingasagna, en vogað þótti að prenta þær með sömu stílum og guðsorðið. Í kjölfarið kom lestrarkverið, hið fyrsta hérlendis, sem hann gaf út 1695.
Nánar um íslensku handritin við 1688 og 1703.

Þórður átti og lék á hljómborð með einni pípuröð, svonefndan regal, sem er viðkvæm tungurödd, þ.e. með blaði líkt og klarinett og með stuttum pípum sem oft þarf að tónstilla og fjarlægja ryk af blaðinu og oftast þarf annan til að blása lofti.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Séra Hjalti, (1665-1754) listamaður, Þorsteinsson, er líklegastur til að hafa rækt þessi hlutverk og jafnvel leikið á hljóðfærið á námstíma sínum í Skálholti 1685-6 og starfandi þar með biskupi til 1688. Og enn prestur þar 1690 til 1692 eftir háskólanám í Kh.
Hjalti lærði hljóðfæraleik og dráttlist ásamt guðfræði ytra, en prestur varð hann í Vatnsfirði 1692 til 1742, en lést 1754.

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir á ritgerð um Þórð biskup Þorláksson, bls. 17 í ,,Glímu", útg. 2010: ,,Eftir heimkomuna 1690 vann Hjalti í Skálholti hjá Þórði og var hluti af starfinu að koma hljóðfærum biskups í lag þar sem Þórður vildi að hægt væri að spila á hljóðfærin um jólahátíðina".

Í sama riti, bls. 14, segir Guðrún Laufey: ,,Samkvæmt heimildum flutti Þórður heim með sér hljóðfæri ... harpsicord eða lítll semball, regal, sem er lítið ferðaorgel og symfón, sem er strengjahljóðfæri".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fyrrnefnda prentsmiðju flutti Jón sænski Mattheusson frá Hamborg á vegum Jóns biskups Arasonar um 1530. Hann gerðist prestur og prentari á Breiðabólsstað í Vesturhópi. Prentverkið komst í eigu eða umráð móðurafa Þórðar biskups, Guðbrands Þorlákssonar, Hólabiskups, en eignarrétturinn aldrei á hreint. Sjá 1703 og 1710.

Skv. Einari Laxness í Íslands sögu I, 179, þá fékk Ögmundur Pálsson (~1465 til ~1541), síðasti kaþólski biskupinn í Skálholti 1521-1540, annan merkan grip, einnig frá Hamborg, nefnilega orgel. Næsta orgel þar á undan kom frá Niðarósi. Það flutti þaðan ~1329 Arngrímur Brandsson skógs í Skógum sem 1330 var veitt Oddabrauð, en þekktastur fyrir (ó)skrautlegan feril sem príor, d. 1361.

Samtímaheimildir kalla banamein Þórðar skyrbjúg, en nú talið að um holdsveiki hafi verið að ræða.
Regal er ein radda í núverandi orgeli Skálholtskirkju.

Tilvísun: Jón Ólafur Ísberg: Frumkvöðull vísinda og mennta, 132.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1697

  • Synda og misgjörða vorra vegna
← 1696Frostin stóðu fram á vor1697 →Synda og misgjörða vorra vegna