Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1697
1697
1697

Synda og misgjörða vorra vegna

Hljóðbrot0:00

Lag Kross á negldur meðal manna - SSB frá 1936 nr. 113

SSynda og misgjörða vorra vegnavarð Drottinn Zebaoth oss að hegnameð hungurs- dýrri og harðri tíðslíkt er tilstandi þinna þegnaþar af hermennsku' ei megna gegnaþyrmi svo Patron landsins lýð.

Glúmur Gylfason · 1697

Heimildir og samhengi

Á bls. 5 og 6 í Alþingisbók 1697 svarar lögrétta og kemur sér hjá að verða við beiðni Kristjáns V. um að Íslendingar á aldrinum 18 til 26 ára gegni herþjónustu í Noregi.
Fyrstur til að óska eftir Íslendingum til herþjónustu var Eiríkur prestahatari Magnússon lagabætis árið 1286, sem bað um 60 unga karlmenn úr hverjum landsfjórðungi, þ.e., 240 talsins auk lendra manna. Enginn fór.
Þarna mun hafa verið ætlun kóngsins norska að berja á Dönum vegna arfamála, en ekki Svíum eins og reglan varð eftir að Noregur féll undir danskt konungsvald við dauða Hákonar VI. Noregskonungs árið 1380.

Alþingisbókin:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
,,...fyrir Hans Maietets fótskör framleggjum þess auma og fátæka lands sorgarlegt og aumkvunarlegt tilstand, í því, að Drottinn Zebaoth hefir heimsókt og vitjað vor, vegna vorra margfaldra synda og misgjörða, með stórum harðindum og dýrri tíð, svo fjöldi fólks í hungri burt sofnað hefir ..."

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1697

  • Þórður átti organið
← 1697Þórður átti organið1698 →Vígslu hlaut Jón Vídalín