Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1771
1771
1771

Fjeldsted nú fáir víst þakka

Hljóðbrot0:00

Lag Leslie Sarony - Rhymes (1932)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

FFjeldsted nú fáir víst þakkaog fljótt verður látinn með bakkaað lúða í sveitsem lög engin veitleyft verði' að ganga í frakka.

Glúmur Gylfason · 1771

Heimildir og samhengi

Á bls. 109 og 114 hjá Harald Gustafsson í Mellan kung og allmoge, kremur fram að rentukammerið hafi haft hug á að gera breytingar bæði á verslunarmálunum og embættismannakerfinu á Íslandi. Prestar skyldu lesa af stól ósk um að allir (skrifandi) sendu Landsnefndinni hugmyndir að tilhögun landsmála.
Ein heimild sýnir að svo hafi prestur gert, en sömuleiðis er aðeins ein heimild til um hið gagnstæða, undirrituð af 23 íbúum Sandvíkurhrepps í Flóa.
Frá einhverjum þeirra a.m.k. 28 hreppstjórum sem skrifuðu undir bréf til Landsnefndarinnar kann nefndarmaðurinn Þorkell Fjeldsted (1740-1796) að hafa fengið tillögu, sem hann gerði að sinni, um aukið dómsvald hreppstjóra og að þeir fengju að ganga í síðum frakka til þess að virðing yrði borin fyrir embættinu, (bls. 119, 122 og 150 og 153 hjá H.G.): ,,Derass status skal höjas genom att at de ska ha rätt at gå med lång rock".

Bæði bændur og embættismenn lögðu til við Landsnefndina að lausamennska yrði bönnuð, (bls. 122 hjá H.G.).
Um viðkvæmni gagnvart frakka, sjá og 1921.

Kristleifur Þorsteinsson, f. 1861: Úr byggðum Borgarfjarðar, 26: ,,Fólki var ráðið til að klæðast í föt úr íslenskri ull frá hvirfli til ilja. ...Það þótti ekki hæfa öðrum en fyrirmönnum að klæðast flíkum úr útlendu efni og væri einhver bóndamaður svo djarfur að voga slíkt, þótti sá hinn sami misbjóða heiðri þeirra háu með því að reyna að skreyta sig líkt og þeir”. Sjá enn fremur 1871.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Þeir almúgamenn sem skiluðu svörum til Landsnefndarinnar fyrri, 1770-72, kvörtuðu undan því að þegar loks kæmi röðin að þeim hjá kaupmanninum þá hefðu heldrimennin þegar haft á braut allar vörur sem sem til einhvers væru nýtar. (Harald Gustafsson, Mellan kung och almuge, 127).
En það var fyrirskipun Alþingis 1639, að efri stéttir þjóðfélagsins skyldu fá afgreiðslu hjá kaupmanni á undan almúganum., sjá 1639.

Landsnefndin fyrri bjó í Tyftunarhúsinu nýja,
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
sem taldist fullbyggt 1771, en kvisturinn var þá ekki kominn. MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Á bls. 161 og neðanmáls á bls. 160 hjá Harald Gustafsson í Mellan kung och allmoge, segir efnislega að embættismenn hafi verið svo andvígir tillögum almúgans að þær hafi ekki náð fram að ganga. M.a.s. var orðalagið um jarðatíund að lokum svo loðið að hægt var að skilja það svo sem leiguliðar ættu að greiða hana. (Sjá 1619). Ekki varð af því að hreppstjórar fengju aukið valdsvið, en sýslumenn fengu óáfrýjanlegt dómsvald í ákveðnum málum og máttu einir klæðast frakka.

Sami, HG, segir í ,,Upplýsingin á Íslandi", bls. 59 að umbótatillögur Landsnefndarinnar sem styrkja skyldu stöðu bænda gagnvart jarðeigendum komust ekki í framkvæmd vegna andsöðu íslenskra embættismanna.

95% bænda voru leiguliðar. Jarðeigendur voru: Kóngur 16%, kirkja 32%, fáeinir auðmenn áttu 52%. Bls. 58 í sömu bók.

Myndin af frakka- og húfuskrýddum hreppstjóra, 2. f.v. - Árna Kl. Hallgrímssyni, Vogum, Vatnsleysuströnd, er frá f.hl. 20. aldar.

Í Árnesingi Sögufélags Árnesinga, riti IV, bls. 189, fjallar Páll Lýðsson, hreppstjóri, ýtarlega um hreppstjóraembættið og kann frá því að segja að 37 árum síðar hafi dómstjóri, Magnús Stephensen, lagt til við stjórnina að hreppstjórum yrðu sett erindisbréf og fenginn embættisbúningur. Leiddi þetta ári síðar, 24. nóvember 1809, til þess að þeim var falið að sverja konungi eið og urðu konunglegir embættismenn og sett svonefnt hreppstjórainstrux. Ekki lætur Páll þess getið hvort hreppstjórahúfan hafi komið þá strax, en bláan einkennisbúning með gulu vesti fengu þeir. (Mellan kung och almoge, 285).

Stéttaskiptingu að hætti ásatrúar skýrir Rígsþula í Eddukvæðum.

Hannes Pétursson, Heimildarþættir lll, 70: ,,Hinn 24. febr. 1899 hafði Íslandsráðgjafi sent landshöfðingja bréf um nýjan hreppstjórabúning er skipa mátti fyrir um: ,,dökkbláan frakka eða jakka með tvöfaldri röð messingsknappa með hinu venjulega lögreglueinkenni, hönd með auga, samsvarandi yfirhöfn, vesti og buxur, dökkblá að lit, vestið með einni röð messingsknappa og loks dökkbláa derhúfu flata með tvöföldum gullborða og mjórrri snúru grænni á milli".



Myndir

Einnig frá árinu 1771

  • Sé Struense köttur, þá kóngurinn mús,
← 1771Sé Struense köttur, þá kóngurinn mús,1772 →Hannes finnur Heiðarvíga