Hannes finnur Heiðarvíga
Lag Einn var að smíða ausutetur
Hannes finnur Heiðarvígahistoríubrot.Almenna lætur undan sígaenda dæmt í þrot.
Heimildir og samhengi
Hannes Finnsson (1739-1796) finnur í Stokkhólmi þann hluta Heiðarvígasögu sem talinn var glataður.
Hannes varð þar vitni að sænskri byltingu að ofan. Kóngur steypti ríkisstjórn aðalsins.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Vefurpressreader.com (opnast í nýjum flipa)
Í Heiðarvígasögu ryðja berserkirnir, Leiknir og Hallur, veg um Berserkjahraun. Sagan sú var ásamt Homilíubókinni í farteski Jóns Eggertssonar til Svía 1683 og brunnu því ekki í Kaupmannahöfn 1728 nema nokkur blöð sem Árni hafði fengið að láni til uppskriftar, en Jón Grunnvíkingur endurritaði eftir minni.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hæstiréttur dæmir Almenna verslunarfélagið til greiða 4.400 rd. í skaðabætur (~1.000 kýrverð) fyrir maðkað mjöl sem það flutti til Íslands 1768. Úr varð Mjölbótasjóðurinn, en félagið lenti í fangi kóngs, sjá 1773 og Íslandsverslunin þar með.
Hús Lærða skólans, nú MR, við Lækjargötu í Reykjavík, var byggt fyrir fé úr Mjölbótasjóðnum og lokið um 1846.
Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, segir í kafla 8, 4, að Almenna verslunarfélagið hafi stuðlað að margvíslegum endurbótum í íslenskum fiskveiðum og fyrst til að vinna markað við Miðjarðarhaf og stofnað þar vöruhús í 6 borgum og flutt fisk beint frá Íslandi. Þar með var meira en tveggja alda þætti Glückstad í utanríkisversluninni lokið að mestu enda vöruhúsinu þar lokað 1771. Vill Gísli Gunnarsson því ekki setja Almenna undir sama hatt og Hörmangara, sem forðuðust allar nýjungar og fluttu ekki inn rekstrarvörur fyrir sjávarútveg.
Næsta víst er að kóngsverslunin sem tók við af Almenna 1774 hefur haldið áfram Miðjarðarhafsverslun með fisk enda eftirspurn mikil á föstutímunum í kaþólskum löndum þegar enginn fiskur barst frá Nýfundnalandi í ,,Frelsisstríði" nýlendnanna 1776 og allt hefur þetta orðið Ólafi Thorlacius að gagni í Miðjarðarhafsviðskiptum hans, sjá 1790.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)