Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1772
1772
1772

Hengja ei lengur þjófa þarf

Hljóðbrot0:00

HHengja ei lengur þjófa þarfþjófa- risið seturtil nota Ingólfs nýtum arfum níu hundruð vetur.

Jónasar vitna skal vísan til ljóðsað verði ei ómöguleg:Þjófarnir hafi víst ,,gengið til góðsgötuna fram eftir veg".

Án þeirra hefðum ekki húshvar æðstum vel sé borgið,,engin jurt í okkar krús"við Arnarhól og Torgið.

Tilvísanir: Jónas Hallgrímsson, Ísland, farsælda frón;Halldór Laxness: ...því hvað er auður og afl og húsef eingin jurt vex í þinni krús.

Glúmur Gylfason · 1772

Heimildir og samhengi

Íslands byggð oftast reiknuð frá 874, þ.e. ~900 ár.

Tugthúsið við Arnarhól í Reykjavík telst fullbyggt 1771, en hefur varla gegnt ætluðu hlutverki sínu sem fangahús fyrr en 1772 en þar var aðsetur Landsnefndarinnar fyrri 1770 - 1771.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Saga þess er rakin á eftirgreindri slóð sem úrdráttur er tekinn af hér að neðan.

Vefurstjornarradid.is (opnast í nýjum flipa)

,,Tugthúsinu í Reykjavík, stundum nefnt Tyftunarhúsið, var valinn staður í landi konungsjarðarinnar Arnarhóls jafnframt því sem jörðin var lögð til stofnunarinnar. Hafist var handa um byggingarframkvæmdir árið 1761 en þær sóttust seint þannig að þeim var ekki að fullu lokið fyrr en 10 árum seinna. Auk danskra og íslenskra iðnaðarmanna unnu sakamenn að byggingu hússins en þeim var síðan, eftir að húsbyggingunni var lokið og þeir orðnir innanhússmenn, ætlað að vinna í þágu hinna nýju tau- og klæðaverksmiðja (svokallaðra Innréttinga) og aðra tilfallandi vinnu í hinum upprennandi höfuðstað Íslands.

Teikningar af tugthúsinu við Arnarhól hafa ekki varðveist en fullvíst er talið að arkitekt byggingarinnar hafi verið Georg David Anthon (1714-1781) hirðhúsameistari í Kaupmannahöfn og kennari við Listaakademíuna þar. Auk tugthússins teiknaði hann Viðeyjarkirkju og Landakirkju í Vestmannaeyjum og líklega einnig Bessastaðakirkju.

Húsið, sem er um 260 fermetrar að flatarmáli, var byggt úr tilhöggnu grágrýti, veggir tvíhlaðnir og þakið gaflsneitt og timburklætt. Gluggar, sem voru litlir með járnstöngum fyrir, voru settir samhverft um miðjudyr eins og algengast var um þær mundir. Þegar gengið var inn í húsið varð þar fyrir forstofa með stiga upp á loft. Til hægri handar var íbúð tugtmeistara en til vinstri stórt eldhús og stofa inn af því fyrir fangavörð. Aftan til í húsinu voru tvær vinnustofur, m.a. með tóskaparáhöldum fyrir spunakonur, en klefar fyrir stórglæpamenn í hvorum enda. Uppi á lofti voru fjögur fangaherbergi en yfir því var efra loft með geymslu fyrir ull og tóvinnu. Tugthúsið var talið geta rúmað 16 stórglæpamenn og 54 venjulega fanga. Svo margir fangar sátu þar þó aldrei, þeir urðu flestir um 40. Bæði karlar og konur voru í fangelsinu og frjálslegur samgangur milli kynja, svo frjálslegur að nokkuð var um barneignir þar innan dyra".

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1772

  • Hannes finnur Heiðarvíga
← 1772Hannes finnur Heiðarvíga1773 →Magnús Ketilsson kunni sanna: