Það ár er nú horfið í aldanna skaut
Lag Nú árið er liðið í aldanna skaut
Það ár er nú horfið í aldanna skauter aldregi hverfi til bakaen fremd nokkra prestur af framtaki hlauter fékk hann þar komið við hraunflóðið tautglóandi' úr gígaröð Laka.
Heimildir og samhengi
Lýður Björnsson, Frá samfélögum, bls. 132: ,,Ekki má hlutur sr. Jóns Steingrímssonar falla í gleymsku.
Prófastur taldi kjark í íbúa héraðsins milli Mýrdalssands og Skeiðarársands, hvatti þá til aðdrátta og reyndist þeim ómetanleg stoð í öllum þrengingum".
Hraunflóðið frá Laka að Kirkjubæjarklaustri stöðvaðist meðan Jón söng ,,eldmessuna", 20. júlí 1783.
Séra Jón hafði í ævisögu sinni sömu skýringu á Skaftáreldum og Gísli bikup Oddsson hafði á óáran fjórða áratugs 17. aldar, til 1638, sjá þar.
Sr. Jón Steingrímsson: ,,En hvílíkt stjórnleysi, andvara- og iðrunarleysi ... er sorglegra til frásagnar en ég geti þar orðum eytt að. Hér lifðu menn í sælgæti matar og drykkjar, sumir orðnir svo matvandir, einkanlegast þjónustufólk, húsgangslýður og letingjar, að ei vildu nema þá allra bestu og krydduðu fæðu. Drykkjuskapur og tóbakssvall fór að sama lagi ..."
(Saga Íslands VIII, bls. 206).
HeimildForlagið (opnast í nýjum flipa)