Þó að ítum þætti örg
Lag Sumarið þegar setur blítt - Bj.Þ. 868
Þó að ítum þætti örgþrjóska, kergja, lestirlangtum orti Látra-Björgliðugra en flestir.
Heimildir og samhengi
+ Látra-Björg, f. 1716 á Stærra- Árskógi, var dóttir Einars skálds Sæmundarsonar og Margrétar Björnsdóttur.
Hún reri löngum frá Látrum á Látraströnd, ígildi karlmanns í skiprúmi, skaphörð, einstæð og barnlaus.
Fannst eins og fleiri önduð á víðavangi 1784 þegar fólk hrundi niður vegna skorts á fæðu og nauðsynjum eftir Skaftárelda 1783.
Skáld var hún og lifa enn vísur hennar. Gat verið níðskældin og stefndi valdsmaður, Jón Benediktsson í Rauðuskriðum henni fyrir níðvísuna:
Táli pretta illu ann
aldrei dóma grundar
máli réttu hallar hann
aldrei sóma stundar.
Björg sagði þá einhvern hafa átt við vísuna með því að lesa hana aftur á bak.
Hannes Pétursson, Heimildarþættir I, 13: ,, ... fór um sveitir ... Björg Einarsdóttir frá Látrum, hætt sjósókn og öðrum vosverkum, búin suðsvartri hempu sem tók niður á mitt læri, með hettu á höfði, sauðmórauða, en hnappaskotthúfu þegar hún hafði mest við, mjög hálslöng og hávaxin, og var heldur ,,ókvenlegt atferli hennar í mörgu".
(Sjá Guðrún P. Helgadóttir: „Látra-Björg“. Skáldkonur fyrri alda I–II. 2. prentun 1995, bls. 57–76;
P. E. Ól: Íslenskar æviskrár I, bls. 201).