Í Haga varð Þóra sem lifandi lík
Í Haga varð Þóra sem lifandi líklimafalls- þjáðist af sýkihannyrðakona þó hún var slíkað hrós fær í himnaríki.
Heimildir og samhengi
Séra Pétur Guðmundsson í Grímsey, Annáll 19. aldar, bls. 198, úrdráttur:
Fv. sm. Davíð Hansson f.1731, lést að Hamri á Barðaströnd 1815. Hann var sonur klh. Hans, Lárussonar Scheving sýslumanns í Vaðlasýslu. Davíð var fyrst sýslumaður í Barðastrandarsýslu frá 1752 og bjó lengi í Haga þar sem brann 1777 stór og vönduð stofa sem hann hafði látið byggja. Davíð sagði sig frá sýslu 1781 og var Bjarna (tengdasyni hans) veitt sýslan.
Kona Davíðs (1757) var Þóra Eggertsdóttir Guðmundssonar á Álftanesi á Mýrum, Sigurðssonar lögmanns í Einarsnesi. Hún dó 1784. ,,... hafði henni fallið til limafallssýki á síðustu árum. Hún var slík hannyrðakona, að eftir að hún missti fingurna saumaði hún krosssaumsábreiðu, er Davíð hafði yfir sæng sinni og var það snilldarverk á, að ótrúlegt mundi þykja. ... 1801 var Davíð enn að nýju settur til að gegna þar sýslumannsstörfum, en hann afsakaði sig frá því vegna aldurdóms og var þá Guðmundur dóttursonur hans skipaður honum til styrktar. ... og sýslan var veitt Guðmundi 1806".
Þetta eru sýslumennirnir sem komu við sögu Sjöundármáls 1802.