Ein er báran ekki stök
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Ein er báran ekki stökþó eldur sé að bakienginn hefur á því tökupp að reisa úr flakiSkálholtsstað sem ragnarökröskuðu með brakiokkur reynast ekki spökundirdjúp og Laki.
Heldu'r en ekkert átu menneitruð rotin hræinhlytu deyja hvort eð sennheill þótt væri maginn.
Heimildir og samhengi
Skaftáreldum lauk í febrúar 1784, en þá lagðist ís að Norðurlandi en Suðurlandsskjálfti reið yfir 1. ágúst. Upptök skjálftans voru nálægt Vörðufelli.
Almenningur áleit að hér væri reiði Guðs að verki - iðrunarlaust fólk ætti ekki betra skilið. Þess vegna gat bænheitur prestur, Jón Steingrímsson, líka fengið Guð til að þyrma Kirkjubæjarklaustri.
Gísli Gunnarsson er á annarri skoðun í Móðuharðindabók Máls og menningar, bls. 240: ,,Móðuharðindin voru margslungið fyrirbæri þar sem saman fóru margs kyns náttúruhamfarir í samfélagi sem á engan hátt var tilbúið að mæta slíku ... saman fóru eldar og ísar, verðfall á íslenskum útflutningsvörum, slæmt verslunarfyrirkomulag, almenn fátækt, skeytingarleysi íslenskra yfirvalda gagnvart örlögum fátæklinga og viðbragðstregða skriffinna krúnunnar í Kaupmannahöfn".
Guðmundur Daníelsson: Dómsdagur, 44: ,,14. og 16. ágúst 1784 reið yfir Suðurland afar öflugur jarðskjálfti. Þá hrundu 93 bæir til grunna í öllum þrem sýslum héraðsins, en flest önnur hús, jafnt mannabústaðir sem gripakofar, skekktust og skemmdust".
Þetta ár og næsta féll 20% íbúa landsins úr hungri og sjúkdómum því tengdum..
LÍFTAUG LANDSINS, 222, Gísli Gunnarsson: ,,Þeir sem dóu voru einkum þeir elstu og þeir yngstu og þeir fátækustu og veikustu. Meirihluti bænda voru smábændur með fátt vinnufólk sem oft var tengt þeim blóðböndum. Þessir bændur réðu yfir miklu minni mat í hallæri en sem dygði til að fæða heimilisfókið en það var í verkahring þeirra að skammta, ákvörðun sem gat skilið milli þess hverjir lifðu eða dóu. Dauðastríð fólks var oftast háð fyrir augum þeirra sem eftir lifðu og þungbært hlýtur það að hafa verið, bæði í upphafi og síðar í minningunni. Þeir sem lifðu voru, líkt og Jónas Hallgrímsson orðar það í kvæðinu Gunnarshólmi, ,,hnípin þjóð í vanda".
Jarðskjálfti í beinni:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)