Urðu að fjalla um í Höfn
Lag Hani, krummi, hundur, svín
Urðu að fjalla um í Höfnúr þeim leysa vandahvar æðstu manna eiginnöfnættu í línu að standa.
Heimildir og samhengi
Bóla gengur í 21. skipti nú, þegar líkamlegri heilsu þjóðarinnar er verr komið en nokkru sinni fyrr.
Þetta ár og næsta á undan, þ.e., veturinn 1784-5, dóu 9.336 umfram þá sem fæddust, segir í Annál, VI, bls. 271. Nefnt Mannfellisvetur þar. Þá, þegar tvísýnt er um að Ísland verði mannabústaður framar, deila tveir æðstu menn landsins, Skálholtsbiskup og nýr stiftamtmaður um það hvor skuli skrifa nafn sitt ofar þegar þeir eiga báðir að undirrita skjöl og áfrýjuðu vandanum ríkisstjórnarinnar í Kh. Erindið - bréfið - fór fram og til baka sjóleiðina yfir Atlantshaf uns úrskurður féll: ,,Skrifið báðir í sömu línu"!
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Landsnefndin síðari kemur. Fer þá vinsæll stiptamtmaður, Thodal, sem var kominn á eftirlaunaaldur en vildi ekki yfirgefa sinn póst á meðan ósköpin dundu yfir.
Kom þá stam. Levezow, sá sem átti í línudeilunni við Hannes biskup Finnsson og eru eftirmæli hans í amtmannatali sm. Magnúsar Ketilssonar með öfugum formerkjum við þau sem fyrirrennari hans, Thodal, fékk, nefnir: ,,stolt, vanugheit, smámenni, hissugheit, fljótræði, hvatlegur, harðlegur, ekki góðmannlegur; báðu fáir hann vel fara, en öngvir aftur að koma".