Geistlegan í Grímstungum
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Geistlegan í GrímstungumGuð kann ei umberalandið þvers- og langs- allt umþótt líði margan séraþá pelann geymdi presturinní predikunarstólnumframlengdist ei fresturinnfleygði í gólfið kjólnum.
Heimildir og samhengi
Djáknaannáll, VI, 278: ,,...prestastefna í Grímstungum ...bevísaðist upp á Einar prest (Eiríksson, d. 1810), eitt og annað óskikkanlegt framferði ...undanskot og leynd á sumu sterfbúsins (konu sinnar) góssi, svo sem kistli með um 100 rdlm. er fannst í heykumblsdyrum, tinverki og nokkru af fatnaði er fannst falið í kirkjunni milli þils og veggjar.
Var svo Einar prestur dæmdur frá kjóli og kalli, hvörjum dómi hann appelleraði ...en hætti þar við síðan því um þær mundir átti hann barn við vinnukonu sinni".
Forseti í prestadómi þessum var sr. Ásmundur Pálsson á Auðkúlu, bróðir Bjarna landlæknis, en prófastur, sr. Þorsteinn Pétursson (1757) var þá nýlátinn en biskup, Árni Þórarinsson, kom til Hólastóls þetta ár.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sjá Öldina átjándu, 178.
Og: Mats Wibe Lund:MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)