Schiöth á Akureyri bakar
Lag Fljúga hvítu fiðrildin
Schiöth á Akureyri bakarAnna ræktar garðinnfjögurra eða fleiri makar- fagur minnisvarðinn.
Heimildir og samhengi
Hinrik Schiöth (1841-1923), bakari, kom til Höepfnersverslunar og rak síðar bakarí sjálfur og var póstafgreiðslumaður og bankagjaldkeri.
Frú hans, Anna Cathrine (1846-1921), rak ljósmyndastofu, var afbragðs leikari og stofnaði og sá um Lystigarðinn til dauðadags, en þá tengdadóttir hennar, Margrét (1871-1962), fædd Friis. ,,...var heimili Schiöthshjóna alþekkt fyrir gestrisni og alla prýði. Þau voru einhver hin vinsælustu hjón á Akureyri og höfðu mikla þýðingu fyrir bæinn í 50 ár”. (Knattspyrnufélag Akureyrar var stofnað 1928 á heimili Margrétar og Axels Schiöth Vefurka.is (opnast í nýjum flipa)). Haraldur Björnsson leikari var afgreiðslumaður í verslun þeirra Schiöths.
,,Framandi hreinlæti fylgdi baðherbergi hússins. Vatn var hitað með orku frá gufukatli bakarísins og ,,komu margir meiri háttar menn til að fá að fara í bað”. Minnismerki um Margréti (Margrethe) eftir Jónas S. Jakobsson er í Lystigarðinum. Myndina tók Ragnar Hólm Ragnarsson.
Axel (1870-1959) sonur þeirra - ,,líklega fyrstur er reglulega fékk sér sundsprett í Pollinum” - tók við brauðgerðinni um aldamótin. Hann bjó að Hafnarstræti 23 og þar var KA stofnað 1928. Þetta var 2. bakaríið á Íslandi, næst á eftir Bernhöfts 1834. Lystigarðurinn opnaður almenningi 1912.
Nafn Önnu lifir enn með landsþekktum afkomendum.
Tilvitnanir: Klemens Jónsson: Saga Akureyrar, bls. 122;
Jón Hjaltason: Saga Akureyrar, bls. 29, 55, 282, 297, 302.
Tivísun: Jón Þ. Þór: Höndlað við Pollinn, bls. 49
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Piparkökusöngur: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)