Út að skipa og upp á sæ
Lag Afi minn og amma mín út á Bakka búa
Út að skipa og upp á sæer alltaf mikill vandi.Fyrst í Neðstakaupstað kajkom á þessu landi.
Heimildir og samhengi
Fyrstu hafskipabryggju hérlendis lét Sassverslun í Neðstakaupstað á Ísafirði gera.
Slík kom hjá Pétri Thorsteinson á Bíldudal um 1890 - en hafskipabryggjur á Ísafirði urðu tvær 1896 með tilkomu þeirrar sem Tangverslun gerði út í Pollinn og þrjár 1907 þegar smíðuð var Konungsbryggja, síðar nefnd Bæjarbryggjan, fram af Bankagötu í tilefni af heimsókn Friðriks VIII. (Jón Þ. Þór: Saga Ísafjarðar II, 112, 136, 294).
Guðjón Friðriksson, Saga Reykjavíkur. Bærinn vaknar, 502:
Árið 1897 skrifaði Helgi Helgason (1885) eftir ferð til Vestfjarða, hve Vestfirðingar stæðu langtum framar höfuðstaðarbúum í sambandi við upp- og útskipun. Þar væru víðast komnar bryggjur og vörurnar fluttar í vögnum á akteinum.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Mynd sem sýnir gömul verslunarhús á Ísafirði:
Myndupload.wikimedia.org (opnast í nýjum flipa)
Íslenskar æviskrár V, þ.e., í viðbæti eftir Jón Guðnason á bls. 288, segja Bjarna Einarsson (1862-1943) hafa á Akureyri smíðað árið 1898 fyrstu hafskipabryggju hér á landi og síðar átta aðrar.
Vefurisafjordurhotels.is (opnast í nýjum flipa)