Er Ameríkanarnir Alaska kaupa

Er Ameríkanarnir Alaska kaupaóðara þangað vill Jón með oss hlaupahonum ei dámar með Dönum sig staupaaf dásemdum vesturheims þreytist ei raupa.

Glúmur Gylfason · 1867

Heimildir og samhengi

Bandaríkin kaupa Alaska af Rússum á 7,2 milljónir dollara.
Jón Ólafsson (1850-1916), skáld, ritstjóri, þing- og ævintýramaður, sjá1871, ,,flúði" 1873 í útlegð til Ameríku þeirra erinda að undirbúa flutning allra Íslendinga til Alaska og skyldi með því auglýsa heiminum að Danir hefðu gert Ísland óbyggilegt.
Úr skógum Alaska myndu þeir skjótt smíða slík skip að legðu undir sig Kyrrahafsverslunina allt til Kína og fjölga á 3ur til 4um öldum í 100 milljónir sem allar töluðu íslensku sem þá myndi útrýma ensku í (Vestur)heimi.
Þetta má lesa á neðanskráðu netfangi, sem hefur það úr bók Jóns, ,,Alaska”.

Jón Ólafsson, ritstjóri, alþingis- og ævintýramaður, f. Kolfreyjustað 1850, d. 1916, ferðaðist til Alaska 1873 á vegum Grants forseta USA til þess að kynna sér hvort aðstæður hentuðu Íslendingum til landnáms, en vesturferðir voru þá nýbyrjaðar.
Sjá 1870, 1871 og ævisögu hans:
Ævintýramaður, eftir Gils Guðmundsson, og
Vefurlemurinn.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir