Olían þykir alls til vís
Fimmskeytla að hætti séra Davíðs Þórs Jónssonar
Olían þykir alls til vísútskúfi myrkri, bræði ísá hákarlalifrinni lækkar príslyktin af henni er öðruvís-i.
Heimildir og samhengi
Jón Hjaltason: Saga Akureyrar, 2. bindi, bls. 18-19. Úrdráttur:
Um aldir höfðu Íslendingar notað lýsi til ljósa án þess að vera ánægðir með grútarlampana.
Baðstofur urðu sótsvartar undir loftið og grútarlykt settist í föt. Olíulamparnir leystu þennan vanda.
Olía hafði byrjað að flytjast til Akureyrar um 1870.
Þegar Gránufjelagsskipið Rota, hlaðið steinolíu, varð að hverfa frá sökum storma 1884, gerðu Akureyringar út hestalest að sækja olíu til Sauðárkróks.
Stöðugt lækkandi verð á lýsi fram yfir 1885 drap síðasta vonarneistann um að það yrði eftirsótt á nýjan leik.
En drottinn lagði líkn með þraut. Lausnarorðið var síld.
Jón Þ. Þór, Sjósókn og sjávarfang, bls. 185 segir að 1861 hafi steinolía borist til Danmerkur frá Bandaríkjunum og upp úr því hafi íslensku þilskipin snúið sér að öðrum verkefnum en hákarlaveiðum. Það lýsi sem flutt var utan allt fram til 1925 hafi verið notað til iðnaðarframleiðslu. (1876).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)