Péturs þránar tíð og tal.
Lag Hef ég lengi heimsfögnuð - Bj.Þ. 842
Péturs þránar tíð og tal.Tryggvi að Gránu sestur.Jónas Stjána frá Stóradal.Streyma dánar Vestur.
. Lag: Fyrr var oft í Koti kátt
Kanada var kónglaust landkýrrassa þar trúinvíst ei þekktist vistarbandvinnukona frúinekkert bannað, allt var leyfteins og kýr á vorií biskupsleysi stömpum steyptstörfin vitna´ um: þori.
Heimildir og samhengi
Vikið am. Pétri Havsteen (1812-1875) eftir um 4urra ára ósamlyndi við stórlynda forystumenn í hérði: sr. Björn Halldórsson, Laufási, Tryggva Gunnarsson frkvstj. Gránufjelagsins, Jón Sigurðsson alþm., Gautlöndum, sm. Stefán Thorarensen og ekki síst vesturfaraagentinn Einar Ásmundsson í Nesi:
Torfi K. Stefánsson Hjaltalín fjallar um málið í Eldur á Möðruvöllum frá bls. 583 til 705 og gefur Pétri ekki alla sökina.
Gránufjelagið, stofnað 1870, var þá búðarlaust innkaupafélag bænda við við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslu og skyldi ekki hagnast á kostnað bænda eins og kapítalistarnir dönsku. (Um hagfræði Björns í Brekkukoti, sjá 1619).
Framkvæmdastjóri Tryggvi Gunnarsson (1835-1917)
Tilvísun: Jón Þ. Þór, Höndlað við Pollinn, bls. 53.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Þórir Bergsson, í Endurminningum, útg. 1984, bls. 114: ,,...vægilega hefur verið sagt frá því hvernig Gránufélagið fór út um þúfur, ef til vill réttast að ausa þær minningar moldu frekar en að reyna að klóra yfir afglöpin”.
Myndfarm8.static.flickr.com (opnast í nýjum flipa)
Eldur á Möðruvöllum, bls. 604, klórar ekki yfir afglöpin, en Tryggvi kenndi öðru um.
Hann skrifaði grein í Ísafold 1888, og fjallar um skuldseiglu og vöruóvöndun Eyfirðinga við kjöt- og fiskverkun – jafnt á sjó og í landi sem og meðferð á ull.
Því liggi 75.000 óseljanleg pör af vetlingum og sokkum í Kaupmannahöfn.
Grána lifði þó til 1912;
Vefurvisitakureyri.is (opnast í nýjum flipa)
* Jónas læknir, d. 1960, stofnandi NLFÍ, sonur Kristjáns (1832-1888) b. Snæringsstöðum, Kristjánssonar (1795-1866) ríka í Stóradal (1858);
Jónas var mikilmenni.
Sem læknir á Sauðárkróki kom hann á samvinnu um varnaraðgerðir sem hindruðu útbreiðslu spönsku veikinnar til Norðurlands 1918, opnaði augu manna fyrir margs konar óþrifnaði sem viðgekkst, kamarleysi og mykjuhaugum í þéttbýli, stuðlaði að bættu matarræði sem vann bug á skyrbjúg, forsprakki Náttúrulækningafélagsins og vann mörg læknisafrek auk annarra. (Heimild m.a. Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar II).
Af Jónasi segir Stefán Filippusson í bók Árna Óla, Fjöll og firnindi, bls. 156: ,,...hafði hann getið sér almenningsorð fyrir dugnað í ferðalögum, fyrir það hvað hann var viðbragðsfljótur þegar hans var vitjað, úrræðagóður og snjall læknir. Var það allra manna mál, að slíkur læknir hefði ekki þangað komið. Voru margar sögur sagðar af snilli hans".
Vesturheimsferðir. Einar Laxness, Íslands saga I, bls. 35:
,,Búferlaflutningar fjölda Íslendinga til Norður-Ameríku hófust að marki 1870. Orsakir voru, auk árferðis, samfélagsskipan hérlendis, sem setti búsetu og atvinnu manna þröngar skorður (vistarband).
Það leiddi til offjölgunar í sveitum og vesöld fólks, sem sá ekki önnur úrræði en landflótta”.
Landeigendur á alþingi sáu til þess með vistarbandi þar til 1894 að ekki myndaðist þéttbýli við sjávarsíðuna sem tekið gæti við mannfjölgun úr 50 þúsund í 80 þúsund.
Jón Ólafsson, skáldið og ævintýramaðurinn frá Kolfreyjustað, sjá1871, ,,flúði" 1873 í útlegð til Ameríku þeirra erinda að undirbúa flutning allra Íslendinga til Alaska og skyldi með því auglýsa heiminum að Danir hefðu gert Ísland óbyggilegt.
Úr skógum Alaska myndu þeir skjótt smíða slík skip að legðu undir sig Kyrrahafsverslunina allt til Kína og fjölga á 3ur til 4um öldum í 100 milljónir sem allar töluðu íslensku sem þá myndi útrýma ensku í (Vestur)heimi.
Þetta má lesa á neðanskráðu netfangi, sem hefur það úr bók Jóns, ,,Alaska”.
Vefurlemurinn.is (opnast í nýjum flipa)
Bókin öll: Vefurgutenberg.org (opnast í nýjum flipa)
Gils Guðmundsson: Ævintýramaður -Jón Ólafsson.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
,,Kónglaust:HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)
Kýrrassa trú: Kristján Níels Jónsson (Káinn)Ísmús (opnast í nýjum flipa)
HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)
Trúfrelsi, vistarfrelsi og prentfrelsi var í Vesturheimi og nýttu vesturfarar sér það og stóðu í áköfum trúardeilum og gáfu út blöðin Heimskringlu og Lögberg, sem tókust harkalega á,
Þeim Vestur-Íslendingum sem entist líf og heilsa vegnaði jafnan vel vestra.