Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1869
1869
1869

Nokkuð þykir brugðið Bleik

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

NNokkuð þykir brugðið Bleikbrott sá rauði strengurvið Landsyfirdóminn danska úr leikdregur ekki lengur.

Glúmur Gylfason · 1869

Heimildir og samhengi

Björn Þórðarson, Landsyfirdómurinn 1801 - 1919, bls. 183: ,, ...á árunum 1856 - 1869 ...eru flutt allmörg mál á dönsku fyrir yfirdóminum... Í síðasta sinn var mál flutt á dönsku fyrir yfirdóminum og kveðinn þar upp dómur á þeirri tungu árið 1869".

Í sömu bók er þess getið að á árum Yfirréttar, 1593 til 1800 hafi menn sótt eða varið mál þar á dönsku ef þeir vissu andstæðinginn miður færan á þeirri tungu.

,,Rauði strengur" vísar til Dannebrog, en að rauður litur þess skyldi vera í íslenska fánanum fór lengi ekki vel í þjóðernissinnaða Íslendinga.

Myndir

Einnig frá árinu 1869

  • Núna syrgir Norðurland
  • Þjófar fái líf sitt lengt
← 1869Þjófar fái líf sitt lengt1870 →Péturs þránar tíð og tal.