Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1877
1877
1877

Þorleifur fjarsýnisgáfu gæddur

Hljóðbrot0:00

Lesið

ÞÞorleifur fjarsýnisgáfu gæddurmeð græðarans eðli og höndum fæddurlæknis þó ei væri klæðum klæddurkom þó af fundi hans margur græddur.

Glúmur Gylfason · 1877

Heimildir og samhengi

Þorleifur Þorleifssonwikizeroo.org (opnast í nýjum flipa) (1801wikizeroo.org (opnast í nýjum flipa)-1877wikizeroo.org (opnast í nýjum flipa)) var smáskammtalæknir í Bjarnarhöfn, sem fékk læknisleyfi og settur héraðslæknir um skeið og sæmdur dannebrogsorðu fyrir læknisstörf að tilmælum landlæknis að haldið er.
Þorleifur var gæddur fjarsýnishæfileikum, aflasæll formaður, mikil (refa)skytta og dugandi bóndi.
Oskar Clausen segir m.a. í Sögum af Snæfellsnesi II, 84, að sóknarpresturinn á Setbergi hafi þýtt fyrir hann danska lækningabók. Annars bjó hann að óvenjulegum meðfæddum hæfileikum sem dugðu stundum þegar lærdóminn þraut.
Afkomendur Þorleifs eru fjölmargir. Einn er Elísabet, kona séra Árna Þórarinssonar á Stórahrauni sem var barna- barnabarn hans.

Ekki voru allir smáskammtalæknar sömu gerðar og Þorleifur.
9 árum fyrr, 1868, fellir sm. Jón Thoroddsen eftirfarandi kafla inn í söguna Maður og kona, sem á að gerast hundrað árum áður: ,,...margir voru þeir klerkar og leikir menn á landi hér er fengust við lækningar; höfðu sumir numið þá íþrótt af bókum, en sumir af öðrum mönnum ...voru sumir að nokkru nýtir, en sumir blendu læknisdóma sína ýmsum hindurvitnum og galdrakukli; ...var það og altítt um sjúkdóma, ...að þeir voru kenndir göldrum og gerningum, ...en við þær meinsemdir ...þóttu aðrar tilraunir ekki tækilegri en leita þeirra manna er líklegir voru til að geta rekið þá fjendur af höndum sér. Draugarnir voru þá annaðhvort settir niður í eitthvert holt eða hraun, gil eða gjótu og þótti þar jafnan verða reimt síðan". Sjá 1661.

VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

Hannes Pétursson, Heimildaþættir 2, bls.19: ,,Blóðtökur héldust í landi fram á seinni helming 19. aldar. Gengi þeirra dvínaði smám saman þegar fjölgaði skólamenntuðum fýsikusum.

Orðabók Forlagsins 2010: kírúrg: skurðlæknir

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Um lækningar til forna, sjá t.d. bók Ólínu Kjerúlf Þorrvarðardóttur, Lífgrös og leyndir dómar
Vefursaga.sogufelag.is (opnast í nýjum flipa)

Sigríður Svana Pétursdóttir ritar um aðgerðir stjórnvalda í málum smáskammtalækna 1855 - 1932 í Ráðstefnuriti l, Annars íslenska söguþingsins frá bls. 230.

Sjá bls. 20 í ritgerð Hilmars Garðarssonar, Saga Veðurstofu Íslands, útg. 1999: SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1877

  • Ásgeiri með flesta fýsir
← 1877Ásgeiri með flesta fýsir1878 →Reykjanes fær vita og vörð