Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1878
1878
1878

Reykjanes fær vita og vörð

Hljóðbrot0:00

Lag Veröld fláa - Bj.Þ. 874

RReykjanes fær vita og vörðvel þá skipum miðar.Í Gönguskörðum við Skagafjörðskelfur fé og riðar.

Glúmur Gylfason · 1878

Heimildir og samhengi

Kveikt var 1. desember á fyrsta vita landsins, Reykjanesvita á Valahnjúk. Frásögn og mynd má sjá á slóðinni:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Vitavörður ráðinn og fékk 800 kr. í árslaun og hús reist fyrir hann og vegur lagður þaðan til vitans. 8 árum síðar eyðilagðist vitinn í jarðskjálfta. Nýr reistur 1929.

Gunnar Ólafsson, Endurminningar, bls. 111: ,,...einkum var vitinn nauðsynlegur fyrir misvetrarferð danska póstskipsins. Það þótti ekki árennilegt að sigla hér upp að landinu ljóslausu á löngum og dimmum vetrarnóttum".
Myndvf.is (opnast í nýjum flipa)

Valahnjúkur:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Viti á Stórhöfða 1906, Dyrhólaey 1910, Bjargtöngum 1913, Ingólfshöfða 1916.
Um vita, sjá 1847.

Riða í sauðfé barst að Veðramóti með enskum hrút af Oxford Down kyni. Dr. Björn Sigurðsson (1913-1959), sonarsonur Björns Jónssonar (1848-1925), bónda þar, varð síðar víðkunnur meðal lækna fyrir rannsóknir á sauðfjársjúkdómum. Rockefellerstofnunin í USA, þar sem Björn stundaði framhaldsnám, lagði fram helming kostnaðar við að koma upp rannsóknarstöðinni á Keldum 1948 með því skilyrði að Björn yrði forstöðumaður.
Veðramót:
Myndfeykir.is (opnast í nýjum flipa)

Sjá Sögu Sigurðar Sigurðarsonar, dýralæknis, bls. 2, 156, 180 og

Vefurkeldur.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)

FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1878

  • Utan bóndi hélt um haf,
  • Kom til landsins kandidat
  • Yfirvöldin ekki launa
  • Ebenezer naskur, sá,
← 1877Þorleifur fjarsýnisgáfu gæddur1878 →Utan bóndi hélt um haf,