Yfirvöldin ekki launa
Lag Reið ég Grána yfir ána
Lag Sá frjáls við lögmál
Yfirvöldin ekki launaeinhvern skottulækni á Krókallt sem varðar kírúrg kaunakennt skal bæði og lært af bók.
Þorleifi ríka á Háeyri hríshugur við nýmóðins tæknisjúklingi þá fyrst voðinn vísvitjað sé hans af lækni.
Heimildir og samhengi
Kristmundur Bjarnason, Skagfirskur annáll 1847-1947, bls. 152:
,,4. sept: Júlíus Halldórsson héraðslæknir í 8. læknishéraði ...settur læknir í Skagafirði.
20. sept: Sýslunefndarmaðurinn í Sauðárhreppi, Þorleifur Jónsson á Reykjum, lagði til við sýslunefnd að hún skoraði á Svein Sölvason bónda í Skarði í Gönguskörðum og Jónas Jónsson á Tunguhálsi ,,að halda áfram lækningum sínum og ítreka tilmæli sín til landshöfðingja að veittar verði af læknislaunum þeim, er sparast, þóknanir handa Sveini og Jónasi"". Það gekk ekki eftir.
Á bls. 220 í Annálnum, segir, að Árni Jónsson, þá héraðslæknir í Skagafirði, hafi sótt burt þaðan og haft eftir Guðmundi lækni Hannessyni: ,,Heyrði ég sagt, að deilur hans við skottulækna í Skagafirði hafi átt nokkurn þátt í því”.
Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar, bls. 316: ,,Skottulæknar voru nokkurs konar sjálfboðaliðar í því stríði sem menn urðu að heyja við alls konar sóttir og meiðsli – voru sumir læknar af Guðs náð".
Bls. 119: ,,Hin mesta blómaöld hómópata var um og eftir 1880. Kom það fyrir ...að unglingar, fáfróðir mjög, væru orðnir nafnkenndir hómópatar áður en nokkurn varði”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Bls. 322: ,,Þegar Þorleifur (ríki) Kolbeinsson (1799-1882) á Háeyri (1735, 1827, 1852,) var að dauða kominn vildi sá er hjá honum var sækja lækni. Þá svaraði gamli maðurinn: ,,Lækni vil ég ekki. Þá fyrst er dauðinn vís, þegar læknir kemur til sögunnar””.
Í Bókinni um Daníel, bls. 99, segir Guðmundur Daníelsson: ,,Séra Benedikt stakk á Vilborgu með pípunál og tappaði af henni hátt í byttu af tæru sullavatni og skaffaði henni dropa til að telja í spónblað og taka inn í mjólk úr þrílitri kú".
Undantekning frá reglu yfirvalda, að launa ekki sjálfmenntaða lækna, er Þorleifur Þorleifsson (1801-1877), smáskammtalæknir í Bjarnarhöfn, sem fjallað er um hér næst á undan, 1877.
Um sjálflærða lækna fjallar Friðrik G. Olgeirsson í Langnesingasögu I., bls. 257 til 258.
Þórunn Gísladóttir (1846-1937) titluð ljósmóðir og grasakona í Íslenskum æviskrám V, 533, og ein örfárra kvenna sem getið er í þeim bókum. ,,Stundaði sjó á yngri árum. Gerðist ljósmóðir og tók alls á móti 800 börnum. Stundaði og lækningar með grösum og þótti takast vel".
Sonur hennar var Erlingur Filippusson (1873-1967) ,,homöopati", faðir Ástu grasalæknis, (1920-2005), móður Ásthildar Kristínar Einarsdóttur, sem tekið hefur við starfi móður sinnar: Vefurdraumur.is (opnast í nýjum flipa)
Sjá og um læknismenntun í Reykjavík við 1876.
Hannes Pétursson, Heimildaþættir 2, bls.19: ,,Blóðtökur héldust í landi fram á seinni helming 19. aldar. Gengi þeirra dvínaði smám saman þegar fjölgaði skólamenntuðum fýsikusum.
Orðabók Forlagsins 2010: kírúrg: skurðlæknir
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Um lækningar til forna, sjá t.d. bók Ólínu Kjerúlf Þorrvarðardóttur, Lífgrös og leyndir dómar
Vefursaga.sogufelag.is (opnast í nýjum flipa)
Sigríður Svana Pétursdóttir ritar um aðgerðir stjórnvalda í málum smáskammtalækna 1855 - 1932 í Ráðstefnuriti l, Annars íslenska söguþingsins frá bls. 230.
Sjá bls. 20 í ritgerð Hilmars Garðarssonar, Saga Veðurstofu Íslands, útg. 1999: SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)