Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1899
1899
1899

Olían þykir gera gagn

Hljóðbrot0:00

Lag Skapari stjarna / Hvað boðar nýárs blessuð sól

OOlían þykir gera gagngetur sem hestur dregið vagntil ljósa kom þó annað agn:Edison fann upp rafurmagn.

Glúmur Gylfason · 1899

Heimildir og samhengi

Fyrst kom götuljós í Reykjavík við Bakarabrú – neðst í Bankastræti, 1876, og var eldsneytið olía.
Olíulampar komu í Dómkirkjuna 1901.
Fyrsti olíuknúni bátur íslenskur var Stanley, á Ísafirði 1902.
Fyrsti ,,bíllinn" 1904, réttnefndir bílar 1913.
Fyrsta Diesilolíuknúna íslenska skipið var varðskipið Ægir, 1929. Vélin 1300 hö, og náði 18 mílna hraða á klst.
Björn Jónsson (1846-1912) ritstjóri, fékk, árið 1897, 8-10 hestafla olíuvél og lét hana knýja hraðpressu í Ísafoldarprentsmiðju.

Haustið 1899 rafvæddi Eyjólfur Þorkelsson úrsmiður vélaherbergi prentsmiðjunnar og setti upp tvö ljós á vinnustofu sinni og eitt í skrifstofu Ísafoldar. Notaðir voru 16 kerta bogalampar. Einungis gat logað á þremur lömpum í senn.
T. A. Edison sýndi kolþráðarlampa í París 1881.

Heimild m.a. Þórir Stephensen, Dómkirkjan í Reykjavík.
Vefurrafis.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1899

  • Við gæslustörf Hannes fór á flot
  • Ferguson kunni fleira en prent
  • Hundur vildi ei víkja frá
← 1898Láta mega lúðubanar1899 →Við gæslustörf Hannes fór á flot