Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1899
1899
1899

Við gæslustörf Hannes fór á flot

Hljóðbrot0:00

Lag Allt fram streymir endalaust

VVið gæslustörf Hannes fór á flotí frakkanum hlaut að syndaheimili komust þrjú í þrotþurfa um sárt að binda.

Glúmur Gylfason · 1899

Heimildir og samhengi

Hannes Hafstein sm. á Ísafirði hætt kominn við landhelgisgæslu á Dýrafirði er hann hafði afskipti af breska togaranum Royalist H 423 á firðinum. Drukknuðu þrír er bátur hans sökk.
Sigurður Arnalds, Fornir skuggar, Félagsprentsmiðjan 1955, bls. 177: ,,Á togaranum var íslenskur maður, Valdimar Rögnvaldsson, búsettur í Keflavík en reykvískur að ætt. ...Þykir sannað að hann hafi borið kennsl á sýslumann og gert skipstjóra viðvart".
Togarinn slapp, en braut þegar af sér í danskri landhelgi, náðist þar og hlaut dóm.
Skipstjórinn, sænskur, að nafni Nilson, enn í landhelgi við Grindavík 1902 og fórst þar með skipi sínu, Anlaby.

Sigurður Arnalds,Fornir skuggar, bls. 190: ,,Anlaby strandaði í dimmviðri nálægt Húsatóftum í Grindavík aðfararnótt hins 14. janúar. Brotnaði skipið í spón og fórust allir sem á því voru. ...Var gengið næstu dagana á fjörur ...og komu þá brátt lík þriggja skipsmanna í leitirnar. Eitt þeirra var höfuðlaust, en þó að kynlegt mætti þykja, var það eina líkið sem kennsl urðu borin á. Af fangamarki sem var á fötum þess, mátti auðveldlega ráða, að þar var enginn annar kominn, en Nilson skipstjóri! ..á sínum tíma trúði almenningur því, að hér hefði forsjónin sjálf gripið í taumana".

Um hvert erindi íslenskir áttu um borð í breska togara má fræðast við 1889: ,,Nú Tjallinn fer að toga".

(1861, 1900, 1902, 1903, 1908, 1912, 1922). MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Heimildir: Öldin 19., Árni Óla: Grafið úr gleymsku, bls. 301.
Tilvísun: Tómas Guðmundsson, Gamlar slóðir, bls. 147.

Vefurellenwild.com (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1899

  • Olían þykir gera gagn
  • Ferguson kunni fleira en prent
  • Hundur vildi ei víkja frá
← 1899Olían þykir gera gagn1899 →Ferguson kunni fleira en prent