Hannes hýrna tók
Lag Gamla konan sem dó
Hannes hýrna tókhróður sinn þá jókút þegar komu hans kvæði á bókHannes hýrna tók.
Heimildir og samhengi
Vefurbooks.google.is (opnast í nýjum flipa)
Komu út Ýmisleg ljóðmæli eftir Hannes Þ. Hafstein (1861-1922) Pétursson Havsteen am. og (Katrínar) Kristjönu Gunnarsdóttur pr. Laufási.
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
Þetta sama ár gaf Ísafoldarprentsmiðja út 63ja blaðsíðna ljóðakver eftir Einar H. Kvaran, sem þá var enn ritstjóri Lögbergs í Kanada. Hét kverið Ljóðmæli líkt og ljóðabók nafna hans Hafstein.
Stefán Einarsson, Skáldaþing, bls. 154/155: ,,...þar var ekkert rusl saman við; um það kom öllum saman. (Bls. 157): Ljóðmæli Einars fengu að vísu góðar viðtökur, en bókin hvarf í skugga kvæðabókar Hannesar Hafsteins. ...Jafnvel Jón Ólafsson lofaði kvæðin í Heimskringlu, Ísafold gast vel að þeim, Matthíasi Jochumssyni þótti kvæðin bæði frumleg og andrík".
Þeir Hannes og Einar ásamt með Gesti Pálssyni og Bertel Þorleifssyni gáfu 1882 út ,,Tímaritið" Verðandi, sem hófst á kvæði Hannesar: ,,Ég elska þig stormur", sem Benedikt Gröndal svaraði með kvæðinu ,,Ég elska þig logn", en ,,Einar rauf þagnarmúrinn um líferni stúdenta á Hafnarslóð, lýsti drykkjuskap þeirra og slarki" (Þorsteinn Thorarensen: ,,Í fótspor feðranna, bls. 198").