Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1893
1893
1893

Leitaði svara á Svalbarði Einar

Hljóðbrot0:00

Lag Enginn þarf að óttast síður

LLeitaði svara á Svalbarði Einarsvanni í bátnum – ræðarinn meinar.Með Skúla og Lárusi gerast greinarí götu sýslumanns lagðir steinar. .

Glúmur Gylfason · 1893

Heimildir og samhengi

Alþingis- og sýslumaður Norðmýlinga, Benedikt Sveinsson (1826-1899) á Héðinshöfða – sjá 1874 - fékk son sinn, Einar, f. 1864, nýútskrifaðan lögfræðing, settan sýslumann meðan þing starfaði. Hans fyrsta dómsmál var að rannsaka og dæma í sifjaspellsmáli í Þistilfirði. Sólborg, annar sakborninga, tók þá líf sitt. Þegar greiða skyldi ferjutoll á Jökulsá lét ræðarinn að því liggja að auk Einars og fylgdarmanns hefði þriðji farþegi verið í bátnum, stúlka. Einar hafði erft myrkfælni föður síns og aðhylltist dulspeki, þoldi ekki einveru og gat ekki sofið einn. Þetta fór ekki leynt. T.d. þóttust smiðir að störfum á Stóra-Hofi 1905 verða Sólborgar varir. Þar náði hann þó að stinga hana af með því ráði gamals manns, að fara rakleitt til Odda - Sæmundar fróða - þiggja þar heilaga kvöldmáltíð og koma svo aldrei til Stóra -Hofs framar. (Sbr. Guðjón Friðriksson, Einar Benediktsson I, bls. 350).
Þistlar, bls. 73, segja þessa sögu ítarlega.

Björn Th. Björnsson, Seld norðurljós, bls. 19-20, haft eftir Oscari Clausen rithöfundi: ,,Þingeyingar ýttu undir myrkfælni Einars með því að þykjast sjá Sólborg í fylgd hans”.
Sama: Guðjón Friðriksson: Einar Ben. I, 139, II, 347.

1930 lét mmrh. Jónas Jónsson fá Hriflu Ásmund Sveinsson gera styttuna af Einari Benediktssyni, sem stendur hjá fyrrum bústað Einars, (Héðins)Höfða, í Reykjavík.

Til vesturheims flæmdi draugur Kristján nokkurn Eiríksson, Fossum í Þistilfirði fáum árum fyrr en þetta varð. Hafði draugur þá drepið einn hest og 30 ær á bænum.

Reimleikar í Þistilfirði fylla bókina Þistlar, útg. 2010 og Kristjáns þessa getið þar á bls. 32.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Helgi Hannesson, Þykkskinna, bls. 44/45: ,,Frá ómunatíð var tilvera drauga talin óyggjandi. Nú halda margir þá hugarburð einn. ...Íslenskir draugar voru ...útlagasveit í sífelldu stríði við sambýlisfólk sitt í landinu. ...Óttinn við drauga er orðinn lítill enda fækkar þeim óðum. Vera kann að þeir verði aldauða bráðum".

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Með stuðningsliði afsetts sýslumanns, Skúla Thoroddsen, og Lárusi H. Bjarnasyni, setudómara í ,,Skúlamálum og Skurðs”, síðar sm. á Ísafirði 1892-4, sló í harða brýnu og hendur jafnvel látnar skipta. (1864, 1888, 1891, 1892, 1895, 1908, 1940). Sbr. t.d. ævisögu Skúla, sjá 1891.
Steina lögðu stuðningsmenn Skúla í götu Lárusar. Gerðu honum lífið leitt þegar hann skyldi rannsaka embættisfærslu Skúla. Áttu m.a.s. að hafa lagt á hann hendur.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Svalbarðshreppur:

Vefursvalbardshreppur.is (opnast í nýjum flipa)

Þistilfjörður:
Vefursvalbardshreppur.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefurisafjordurhotels.is (opnast í nýjum flipa)

Vefurboreaadventures.com (opnast í nýjum flipa)

Vefurisavia.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1893

  • Vistar- hlutum bandið bera
  • Hannes hýrna tók
  • Bjarna- fyllti bátinn mar
← 1892Varnargarðinn Grímur hlóð1893 →Vistar- hlutum bandið bera