Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1892
1892
1892

Varnargarðinn Grímur hlóð

Lag Hugsaðu um það, hringaláð, BjÞ.814

VVarnargarðinn Grímur hlóðaf grjóti svo að eiribrotsjór, rastir, brimskafl, flóðbátum Stokks- á eyri.

Glúmur Gylfason · 1892

Heimildir og samhengi

Grímur Gíslason (1841-1898) verður (ferju)bóndi á Óseyri, umsvifamikill jarðeigandi víða og útgerðarmaður sem meðal annarra jarða kaupir 7/8 Stokkseyrartorfunnar og fær löggilta sem verslunarstað 1883, sem tekur gildi 1. apríl 1884.
Árið 1890 ræðst hann í að hlaða grjótgarð meðfram Stokkseyrarfjöru til að verja báta og mannvirki fyrir sjávarflóðum, sem búast mátti við hvenær sem var, sbr. 1653, 1799.
Einnig að koma fyrir voldugum járnfestingum í klappir á sjávarbotni sem halda skyldu skipum á legunni.
Fyrsta skipið, seglskútan Tonkea, 91 1/2 smálest, sigldi inn á höfnina 11. júlí 1892 að viðstöddu fjölmenni og ,,tókst prýðilega".
Byrjað var á garðhleðslunni haustið 1890. Unnu við það frá 20 til 50 menn í einu og luku við um 150 metra á þorra 1891 og var það fyrsti áfangi. Hæðin var 2,5 m, þykkt 3 m við jörð, en 1 m að ofan. Hver faðmur grjótgarðsins kostaði 40 - 50 krónur, sem þá voru árslaun vinnukonu í sveit.

Árið 1893 reisti Grímur svo þarna um 120 fermetra vöruskemmu.

Engan fjársyrk hlaut Grímur til þessara verka. Árið 1896, þegar hann átti skammt efir ólifað, seldi hann Birni Kristjánssyni, síðar ráðherra (1917), og ,,Stokkseyrarfélaginu" skipalægið og skemmuna, en hún brann1926, sem hér er fjallað um það ár. Stokkseyrarfélagið var verslunarfélag stórbænda í Árnes- og Rangárvallasýslum, stofnað 1891.
Sjá ítarlega umfjöllun um Stokkseyrarfélagið frá bls. 77 í Samvinna á Suðurlandi, 1. bindi. Höf: Guðjón Friðriksson.

Skuldlaus eign dánarbús Gríms Gíslasonar var 24.199.17 kr. (árslaun vinnumanns í sveit þá um 100 kr.). Sbr. bls. 75 í Æviminningum GG.

Heimild; Æviminningar Gríms Gíslasonar eftir Guðna Jónsson útg. 1961.

Mynd af Grími Gíslasyni:HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)

Vefurbooks.google.is (opnast í nýjum flipa)

Að þessi umsvif á Stokkseyri hafi átt þátt í hnignun Eyrarbakka er tíundað í ritgerð Guðmundar Gísla Hagalín: SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1892

  • Móhúsaskotta og Skerflóðs Móri
  • Bændum þótti um Flensborg fátt:
← 1892Bændum þótti um Flensborg fátt:1893 →Leitaði svara á Svalbarði Einar