Bændum þótti um Flensborg fátt:
Lag Tíu litlir negrastrákar
Bændum þótti um Flensborg fátt:fæst mun þar til nytjalæra hvorki um lömb né sláttlarfast, skrafa, sitja.
Heimildir og samhengi
Öldin sem leið, bls. 232 segir m.a. að alþingi veiti styrk til að koma upp kennslumenntunarvísi við Flensborgarskóla í Hafnarfirði.
Skólahús Flensborgarskóla og fé til þeirrar menntastofnunar handa alþýðu gáfu hjónin séra Þórarinn Böðvarsson og Þórunn Jónsdóttir 1882 í minningu Böðvars sonar síns.
Kennslugreinar m.a. uppeldisfræði, slöid, dráttlist og kennsluæfingar.
Eyjólfur Guðmundsson segir í Ritsafni 343: ,,Almenningur hélt að Flensborgarskólinn væri engin þjóðþrifastofnun, bændur vildu forða sonum sínum frá slíku og sögðu að í Flensborg lærðu strákar lausingjahátterni og óhug til þjóðnýtra starfa, legðust þar í leti. ,,Skárri er þá búnaðarskólinn að skömminni til” (1880) sagði gildur bóndi í Mosfellssveit. ,,Flensborgarmontrassar ættu ekki að fá vist í okkar sveit” sagði annar"". (1874).
Hannes Þorsteinsson ritstjóri kann skýringu á þessum orðum, sjá 1852. Hún var kvíði fólks fyrir ellinni, - þess sem engan lífeyrissjóð átti annan en börn sín.
Slóð sem sýnir Flensborgarskóla:
Myndfjardarposturinn.is (opnast í nýjum flipa)
Háreksstaðabræður, bls. 24: ,,Um þetta bil voru þrír búnaðarskólar í landinu og tveir gagnfræðaskólar. Einhver skuggi hvíldi samt yfir þeim í almenningsálitinu. Bændurnir sögðu að synir þeirra frá búnaðarskólunum kynnu minna í búfræði en þeir sjálfir. Gagnfræðanemendurnir voru kallaðir hálfmenntaðir uppskafningar, sem til einskir væru hæfir..."
Indriði G. Þorsteinsson: Samtöl við Jónas, bls. 24: ,,Til er munnmælasaga um fyrstu ferð Jónasar til náms. Þeir feðgar, Jón í Hriflu og Jónas, mæta sveitunga sínum, sem spyr þá hvert þeir séu að fara. Jón svarar og heldur mæðulega, að Jónas sé að fara í burtu til að læra. Dapurleikinn í svarinu á að benda til þess, að Jón telji soninn meira eða minna glataðan".
Jónas átti þó eftir að hampa brjóstvitinu á kostnað bókvitsins, þegar hann átti í höggi við verkfræðinginn Jón Þorláksson, sjá1880 - um bændaskóla.
Ofanritað skýrir að með þrotlausu striti hafði þjóðinni tekist að lifa af landinu í þúsund ár með því að hver kynslóð hafði lært af annarri það sem til þurfti. Í vöku féll fólki ekki verk úr hendi og leti var dauðasynd. Viðbrigðin voru því mikil þegar ungt fólk lagði frá sér skóflu og sleif, tók upp bók og penna og lærði nýjungar.
Eldra viðhorfið kom þó síðar fram hjá kommúnistum, sjá hér 1923: ,,allir út að moka", og í nafninu ,,stjórn vinnandi stétta" 1934, og í menningarbyltingu Maós í Kína 1966 til 1976, sem sendi menntamenn út í sveit að vinna erfiðisvinnu.
https://www.althingi.is/altext/raeda/41/790.html?rnr=790<hing=41
Mynd af gamla Flensborgarskólahúsinu:
https://ferlir.is/wp-content/uploads/2023/03/Flensborgarskoli-100.jpg