Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1896
1896
1896

Mörgu var Thomsen um nasir núið

Hljóðbrot0:00

Lag Enginn þarf að óttast síður

MMörgu var Thomsen um nasir núiðog nú er sauðagullið búiðeftir skjálftann fólkið flúiðflæmist Vestur eignum rúið.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1896

Heimildir og samhengi

+ alþm. og skáld, dr. Grímur Thomsen f. 1820. Sat á þingi 23 ár og fékk fleira en hrós - fyllti ekki alltaf flokk Jóns Sigurðssonar - og ,,of varkár" eftir að alþingi fékk fjárveitingavald, 1871, en á hinn veginn brugðið um óráðsíu og stefnuleysi á námsárunum í Kh., bæði af foreldrum og fjárhaldsmanni, en tilfinningakulda af barnsmóður sinni.
Þá fór og illa í suma ,,ættjarðarvini", svo sem Þorleif Repp, að Grímur hafði uppi áróður fyrir félagsskap um norræna samvinnu sem starfaði á Norðurlöndum um miðja öldina, Skandinavisk selskab. Reppur skrifaði blaðagrein og vítti Grím harðlega, eins og honum var lagið, fyrir að gefa félaginu kort af Íslandi.

Hann varð síðast, 1890 - 1892, þingmaður Borgfirðinga og fékk á sig þessa vísu:
Borgfirðingum böl ég syng
bölvaðan fyrir þráann
enn að senda inn á þing
Álftnesinginn gráan.
Grímur fékk þó hástemmt lof frá Gísla Brynjólfssyni yngra 1844 eftir samvistir þeirra á Bessastöðum þann vetur.
Foreldrar vildu gera úr Grími lögfræðing í líkingu nafnans, móðurbróðurins á Möðruvöllum, en úr varð fyrsti list- og bókmenntafræðingur þjóðarinnar.
Tilvísun: Aðalgeir Kristjánsson, ,,Hafnarslóð", bls. 259, 358 og
HeimildAlþingi (opnast í nýjum flipa)

Það er ekki rétt, sem oft hefur heyrst í bundnu máli og lausu, að Grímur hafi tekið við stjórnarskránni á Þingvöllum 2. ágúst 1874 úr hendi Kristjáns IX. Stjórnarskráin var þá hálfs árs gömul (5/1) og vel geymd í Statsarkivet í Kh. og fór ekki þaðan fyrr en 9. apríl 2003 þegar Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, afhenti Davíð Oddssyni forsætisráðherra (1948) frumrit hennar við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík. En teikning, m.a. á bls. 62 í III. bindi Íslands sögu Einars Laxness, sýnir Grím Thomsen ávarpa konung á Þingvöllum.
Heimild:Vefurskjalasafn.is (opnast í nýjum flipa)https://skjalasafn.is/heimild/stjornarskrain_1874
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Kristmundur Bjarnason, ,,Langt inn í liðna tíð", Ari Arason á Flugumýri, bls. 22: ,,Grímur Thomsen sagði fyrir skál Konungs ...Grímur talaði ágætlega og það þess heldur sem hann ekki vissi af þessu fyrr en gengið var til snæðings, þar Halldór Friðriksson (1876), - forseti alls staðar - hafði tekið að sér þessa skál, en af því að hann misnotaði (mismælti) sig svo herfilega áður um morguninn, þegar ýmsar þjóðir og Universiteter voru að skila ávörpum og heillaóskum sínum til Íslands, og voru búnir að því, þá fer Halldór í stólinn og þakkar landsins vegna fyrir allar þessar bænaskrár. Til allrar lukku hafa margir útlendir ekki skilið eða tekið eftir þessu, og H. gjörði mjög rétt í því ekki að leiðrétta orð sín ...og því leitað á dr. Grím".

Sauðasölu til Bretlands hætt þegar bannað er að flytja fé á fæti þangað. Sauðasalan byrjaði í smáu 1871, tók að heppnast 1876 og var selt gegn staðgreiðslu í gulli.
Þegar nýlendu- og iðnbyltingargróði Breta barst þannig til Íslands riðlaðist gróin stéttaskipting (1862) er útigangssauðir gerðu bændasyni að háskólamönnum.
Kaupfélag Þingeyinga, 1882, og síðar önnur, önnuðust söluna og fengu mun hærra verð en kaupmenn sem seldu kjötið saltað í Danmörk.

Mannskæður Suðurlandsskjálfti byrjaði um náttmál 26. ágúst og féllu hús í skjálftum til 10. september. Fórust hjónin á Selfossi og í Vestmannaeyjum dó einn maður af grjóthruni frá Dufþekju – var að fuglaveiðum þar. Féllu 1.309 bæjarhús og samtals 3.692 hús á Suðurlandi. Það tjón metið á rúmar 100 þúsund kr.
Í samskotum í Danmörk og víðar erlendis til styrktar Sunnlendingum komu inn um 120 þúsund kr. (Fjárlög Ísl. ~300 þús. kr.)
Björn ritstjóri Jónsson hafði forystu um fjársöfnun og að smiðir og verkamenn fjölmenntu austur til að koma upp húsaskjóli fyrir veturinn, en fjölskyldur vestan Hellisheiðar tækju börn til dvalar meðan á því stóð: 116 börn í 5 til 9 vikur.
Í Arnarbæli varð allt sem í einum graut, öllu ægði saman, innviðum húsanna, innanstokksmunum, torfi og grjóti útveggjanna.
Heimild: Sr. Ólafur Óafsson í Arnarbæli, Sunnlenskir sagnaþættir, Hildur 1981, bls. 89.
Enn fremur er eftir honum haft á bls. 7 í Meyvant á Eiði: „Óttinn og hörmungin varð enn meiri fyrir það, að svartamyrkur var og blindþoka. Ölfusá ruddist fram með óumræðilegum ofsa; varð flóðbylgja í henni um 16 feta há. Hugðum vér sem við hana búum að hún væri að koma yfir oss gínandi og myndi sópa öllu burt sem lífs hefði komist úr landskjálftanum. Dunurnar og brestirnir í jörðinni bergmáluðu úr einum fjallshnjúk í annan svo sums staðar heyrðist ekki manns mál og alla nóttina var sem jörðin léki á þræði. Fólkið stóð úti um jörðina í hópum, lostið ótta og skelfingu og fól sig guði. Má það furðu heita að ístöðulítið kvenfólk missti ekki vitið".

Nyrðra var þetta hafísár, skip komust ekki til Akureyrar og varð tilfinnanlegur vöruskortur þar.

Páll Ísólfsson, í Myndir úr þjóðlífinu, bls. 195: ,,Ég man jarðskjálftana 1896. Þá var búið um mig í heyi því fólk flúði húsið. Þá var það að einn góður Stokkseyringur bjó um sig í eldaskýli af skipi er stóð í fjörunni. Kaupmaður einn á Stokkseyri spurði hann að því, hvers vegna hann hefði hreiðrað um sig þar með konu sinni. ,,Okkur er óhætt hér svo lengi sem heimurinn fer ekki á rönd." - Heldur þú þá að jörðin sé flöt eins og pönnukaka? - ,,O - já ... svo hefur mér verið kennt". Skráð 1943.

Eftir jarðskjálftann 1896 voru hús til sveita reist úr timbri eða steinsteypu.

Mynd af Arnarbælisbænum 1896:
HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)

Jarðskjálftar, eldgos og skortur voru ekki ein um að hrekja Íslendinga til Ameríku, það gerðu líka draugar, sem ekki aðeins riðu húsum og hræddu fólk í dimmum göngum torfbæja heldur drápu fé og stórgripi, sjá t.d. Þistlar, útg. 2010, bls. 32.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Suðurlandsjarðskjálfti 17. júní 2000:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Suðurlandsjarðskjálfti 29. maí 2008:

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Jarðskjálfti 21. okt. 2020 - undanfari gossins á Reykjanesi í mars 2021:

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1896

  • Þegar sauðasölu lauk
← 1895Árleg töðuvallarvörn1896 →Þegar sauðasölu lauk