Þegar sauðasölu lauk
Lag Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619
Þegar sauðasölu lauksögðu bændur: “Hvað skal nú?Þærur salta og þar að aukþá má stofna rjómabú”.
Margur hafði ei mörgu úrað melta öldum samanmjólk og skyr og mat úr súrsér maginn gerði tamann.
Heimildir og samhengi
Helgi Ágústsson frá Birtingaholti, Þjóð í önn, 103: ,,Alger kyrrstaða hafði ríkt hér á landi í búnaðarháttum frá fyrstu tíð, en um síðustu aldamót eygja menn nýja möguleika í samvinnuhugsjóninni og rjómabúin urðu fyrsti árangurinn af þeirri stefnu".
Einar Laxness, Íslands saga II, bls. 86: ,,Þegar sauðasölu lauk, 1896, komust bændur í mikla erfiðleika með afurðir sínar; var nokkur bót á því ráðin með stofnun rjómabúa, sláturhúsa ... og vandaðri verkun saltkjöts til útflutnings”.
Bls. 212: ,,Smjörframleiðsla rjómabúanna var mikil nýjung og aðalútflutningsvara bænda ásamt saltkjöti og ull”.
Guðjón Friðriksson ritar um rjómabúin í Samvinnu á Suðurandi l, bls. 123 til 197
Þar kemur fram að á fyrri styrjaldarárunum tók fyrir smjörsölu til Breta, en mikil eftirspurn og verðbólga rauf samstöðu bænda sem þá gátu í Reykjavík fengið betra verð með því að selja ,,beint frá býli".
Sigurður Einarsson í formála að Ágúst Helgason í Birtingaholti. Endurminningar, bls. 31:
,,Eins og Ágúst víkur rækilega að í endurminningum sínum, verður landbúnaður Íslendinga fyrir stórkostlegu áfalli, þegar tekur fyrir sölu lifandi fjár til Bretlands 1896. Ágústi verður það þegar ljóst, að nú er vá fyrir dyrum nema fundin verði ný úrræði til þess að gera afurðir bænda að seljanlegri verslunarvöru ...frá þessari viðleitni liggur bein lína til stofnunar Kaupfélags Árnesinga 1929.
Ágúst Helgason í Birtingaholti, Endurminningar, bls. 119: ,,Ég heyri enn, eftir tugi ára, mótbárurnar (gegn) stofnun félagsskapar um smjörgerð. ...Það þyrfti stórfé til áhaldakaupa, engin skilvinda væri til, enginn vagn, engir vegir, miklar tafir mundu verða frá heyskapnum við að flytja mjólkina eða rjómann á hverjum degi til búsins og smjörið vikulega til Reykjavíkur. Að lokum væri svo alveg óvíst að Englendingar vildu borða okkar sauðasmjör. En reynslan varð allt önnur".
Bjarni Guðmundsson, Halldór á Hvanneyri, bls. 20: ,,...að danskri fyrirmynd tóku bændur ...að koma sér upp rjómabúum ...það fyrsta ...sumarið 1900 að Syðra-Seli í Hrunamannahreppi. Um haustið hófst kennsla í mjólkurmeðferð á Hvanneyri. ...Búnaðarfélag Íslands, sem stofnað var 1899, gegndi veigamiklu hlurtverki í þeirri nýsköpun sem hafin var í sveitum landsins. ...Áhrifamesti maðurinn í forystu Búnaðarfélags Íslands upp úr aldamótunum var Þóhallur Bjarnarson, síðar biskup, föðurbróðir Halldórs Vilhjálmsonar" (skólastjóra Bændaskólans á Hvanneyri frá 1907).
Halldór Vilhjálmsson kom til Íslands 1905 eftir 5 ára búnaðar(háskóla)nám í Danmörk og ferðaðist á milli rjómabúanna fimmtán á Suðurlandi. Orðræða hans, um húsakost, aðbúnað, hreinlæti og umgengni kallaði yfir hann reiði Sunnlendinga segir í fyrrnefndri ævisögu, bls. 39.
Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar II, 133:
,,Í byrjun stríðsáranna lögðust rjómabúin niður. Þá voru bændur yfirleitt hættir að færa frá og margir fyrir löngu ... meiri áhersla var lögð á að framleiða kjöt en smjör". (Sjá 1918).
Þærur: a) þykkur vöðvabiti, b) skammrif.
Vefurbyggdasafn.is (opnast í nýjum flipa)
Árnesingur, Sögufélag Árnesinga, Rit II, Lýður Pálsson, bls. 34: ,,Á 3. ártugnum störfuðu rjómabúin með hálfu afli. Útflutningurinn var miklu minni en á blómatíð þeirra, en innlendir markaðir voru sístækkandi fyrir smjör og skyldar vörur.
...Í rjómabúinu á Baugsstöðum í Stokkseyrarhreppi var starfrækt pöntunarfélag frá 1928 til 1969. ...smjörgerð var þar líka ...til 1948"
Sjá 1905.
1899 fluttu nokkrir þingmenn, sem voru líka bændur, tllögu á Alþingi Íslendinga um að hleypa enskum togurum inn í landhelgina (þá 3 mílur meðfram ströndinni) gegn því að þeir héldu áfram að kaupa íslenska sauði.
Um A og D fjörefnaskort sjá í grein Baldurs Johnsen, yfirlæknis, á bls. 35 í Aftanskin, útg. af Sjómannadagsráði 1981:
,,Mjólkuriðnaðarbyltingin hér á landi um síðustu aldamót, þegar rjómabúin héldu innreið sína, og mjólkurfitan var seld úr landi og ,,margarin" keypt í staðinn, hefndi sín grimmilega".
Í viðtalsbók Guðmundar Daníelssonar, Í húsi náungans, frá árinu 1959, segist Margréti Jónsdóttur, rjómabústýru á Baugssstöðum 1908 til 1952 svo frá, að búið hafi starfaði frá 21. júní 1905 til 1952.
Að morgni óku, reiddu eða báru krakkar eða aldraðir rjómann í brúsum til Baugsstaðabúsins. Í þremur áföngum voru strokkaðir 360 pottar af rjóma, 40 mínútur hver. Þannig var strokkað annan hvern dag en hinn daginn unnin önnur störf að smjörgerðinni og lauk vinnu um kl. 24 eða 02.