Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1898
1898
1898

Óþrifnaður í því felst

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

ÓÓþrifnaður í því felstað ílát hundar sleikiokkar glötum heilsu helstaf holds- og sullaveiki.

Við sullaveiki vissi ráð:,,volga mjólk" - kvað séra -,,að verði besta bata náðskal beljan þrílit vera".

Innanklæða sér eigi þóoftara en stundumlús og fló í bóli bjó- bandormar frá hundum.

Glúmur Gylfason · 1898

Heimildir og samhengi

Sums staðar voru askar ,,þrifnir” á þann hátt sem fram kemur í vísunni.
Það færir Elínborg Lárusdóttir til bókar í Endurminningum Hólmfríðar Hjaltason, Tvennir tímar, bls. 45.
Híbýli fátæktar, bls. 32: ,,...hundar gengu lausir í híbýlum manna og sleiktu upp matarleifar af diskum heimilismanna. ...Um þetta fjallar Jón Blöndal (læknir) ...1902".
Bls. 21: ,,Að viðurkenna fátækt og lélegan aðbúnað fólks jaðraði við guðlast eða jafnvel landráð". Þarna er vísað til andmæla Ólafs nokkurs dannebrogsmanns sem mótmælti grein Þorkels Bjrnasonar alþingismanns í Tímariti Hins ísl. bókmenntafélags í lok 19. aldar sem fjallaði á ,,opinskáan hátt um aðstæður fólks í Skagafirði á fyrri tíð".

Læknir, Harald Krabbe, kom til Íslands 1863 og rannsakaði sullaveiki, en hún þjáði sjötta hvern mann.
Hann fann smitleiðina og hófst þá sú barátta við veikina sem skilaði árangri.

1895 ferðaðist hér danskur læknir, dr. E. Ehlers, og kynnti sér holdsveiki á Íslandi. Hann tók myndir og birti ytra til að sýna og sanna þörfina fyrir að safna fé til hjálpar. Þótti virðingu þjóðarinnar þá misboðið.
En danskir Oddfellowar gerðu málstaðinn að sínum og tókst á tveimur árum að kosta holdsveikraspítala þann sem reis í Laugarnesi 1898 og brátt var holdsveikinni útrýmt.

Þekktustu fórnarlömb holdsveikinnar eru Hallgrímur Pétursson, skáld, d. 1674, og biskuparnir Björn Þorleifsson, Hólum, d. 1710, og Þórður Þorláksson, Skálholti, d. 1797.

Í Bókinni um Daníel, bls. 99, segir Guðmundur Daníelsson: ,,Séra Benedikt stakk á Vilborgu með pípunál og tappaði af henni hátt í byttu af tæru sullavatni og skaffaði henni dropa til að telja í spónblað og taka inn í mjólk úr þrílitri kú".

Jóhannes Birkiland: Harmsaga ævi minnar, bls. 34-36:
,,Menn þvoðu sér aldrei á kroppinn nema ... struku framan úr sér með votri dulu og skoluðu skítinn af krumlum sér á undan kirkjuferðum, útreiðartúrum, kaupstaðarförum. ... Var ég ekki látinn þvo mér innan klæða og leið svo langt fram yfir tvítugsaldur ... raunar þvoðu karlar sér oft um hendurnar þannig, að þeir migu í lófa sína.
Allir voru lúsugir á heimilinu og lýs í hverju rúmi. Flær létu sig heldur ekki vanta. Lýsnar voru álitnar sjálfsagðar og óhjákvæmilegur hlutur. ... Þeir sem tuggðu tóbak spýttu á gólfið. Er menn sátu á rúmum sínum hræktu þeir ýmist niður fyrir fætur sér eða langt fram á gólf".

Stam. Rosenörn kynnst svo umgengnisháttum Íslendinga, að hann hafi fyrir vígslu Dómkirkjunnar 1848 látið leggja strámottur á innganga og spýtubakka á gólf og í kór.

Heimildir m. a:
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1898

  • Oddfellowar ei fyr'ir gýg
  • Láta mega lúðubanar
← 1897Dómkirkjuklukkan ding-dong slær.1898 →Oddfellowar ei fyr'ir gýg